Grunnskólinn okkar Oddný Sturludóttir skrifar 9. maí 2012 06:00 Á vormisseri tóku rúmlega 3.000 reykvískir foreldrar þátt í viðhorfskönnun þar sem ánægja þeirra með grunnskólann var mæld. Reykjavíkurborg leggur metnað sinn í umbótastarf og hafa viðhorfskannanir verið lagðar fyrir foreldra grunn- og leikskólabarna um langt skeið. Nú þróum við sambærilegar kannanir vegna frístundaheimila- og félagsmiðstöðvastarfs. Reykjavíkurborg nýtir sér þessar kannanir í öllu gæða- og fagstarfi og tekur niðurstöður þeirra alvarlega. Kannanirnar eru umbótatæki, bæði fyrir skólana og stefnumótun skóla- og frístundaráðs. Mikil gleði með umsjónarkennaraMýmargt ánægjulegt kom í ljós við úrvinnslu síðustu viðhorfskönnunar. Hæst ber að ánægja foreldra með skólastarfið fer vaxandi og hefur ánægjan ekki mælst meiri frá árinu 2002. Ánægja foreldra með umsjónarkennara er mikil og eykst á milli ára. 90% foreldra eru ánægð með viðmót umsjónarkennara við sitt barn og 91% foreldra er ánægt með viðmót umsjónarkennara við foreldra. Mest eykst ánægja foreldra með upplýsingamiðlun umsjónarkennara um barnið, í 82% úr 73% árið 2008. Ánægja með foreldraviðtöl eykst töluvert og mikill meirihluti foreldra telur að börnum þeirra líði vel í skólanum, þar eykst ánægja með líðan í kennslustundum mest. Ekkert barn býr við skerta námsgetu81% foreldra telur að skólinn komi vel til móts við þarfir síns barns og hefur sú tala farið hækkandi síðustu ár sem er jákvætt. Það býr nefnilega ekkert barn við skerta námsgetu, það er hlutverk skólanna að finna námsefni og námshætti við hæfi. Börnin eiga ekki að þurfa að aðlagast skólanum, það er skólanna að mæta þörfum hvers og eins barns. Það er kjarninn í skólastefnu án aðgreiningar, stefnu sem fagnar margbreytileika og vegsamar styrkleika hvers og eins. Í þessu verkefni er skólafólk vakið og sofið – og við erum að ná árangri. Árangur í baráttu gegn einelti og neysluEinn mesti vágestur í tilveru barna og unglinga er einelti. Reykvískir kennarar og starfsfólk skóla eru sífellt vakandi fyrir því að skapa andrúmsloft umburðarlyndis og samvinnu, svo að einelti nái ekki að skjóta rótum. Í þeim efnum hefur merkilegur árangur náðst. Hlutfall foreldra sem telur barn sitt hafa orðið fyrir einelti síðasta árið lækkar úr 16% á árinu 2010 í 11% nú. Sé nánar rýnt í niðurstöður ýmissa mælinga sem tengjast einelti kemur í ljós að börn telja skólann bregðast fyrr við og vera meira vakandi fyrir því að einelti nái ekki að skjóta rótum. En hér skipta vökulir foreldrar, sem og náin samvinna okkar foreldra um börnin í bekknum líka máli. Brýnum fyrir börnum okkar umburðarlyndi, sátt og samlyndi. Það er veganesti sem ávallt heldur gildi sínu. Eitt barn sem verður fyrir einelti er einu barni of mikið, við höldum áfram baráttunni gegn einelti, á hverjum degi. Önnur jákvæð niðurstaða sýnir okkur hvað reykvískir unglingar eru upplýstir og ábyrgir með því að taka afstöðu gegn hvers kyns vímugjöfum. Síðastliðin tíu ár hefur þeim unglingum stöðugt fækkað sem drekka og reykja. Það eru gríðarlega jákvæðar niðurstöður. Takk fyrir frábært fólkÉg vil þakka starfsfólki grunnskóla fyrir þann metnað og fagmennsku sem einkennir skólastarfið. Þakklæti foreldra birtist í næstum hverju einasta svari við þeim fjölmörgu spurningum sem er að finna í viðhorfskönnun ársins. Í reykvískum grunnskólum eru sterkir innviðir, þar starfa metnaðarfullir kennarar, góðir stjórnendur og umfram allt eru þar við nám duglegir nemendur. Árangur í lestri og stærðfræði hefur aldrei verið betri, sama á við um aðrar námsgreinar. Takk fyrir góða foreldra og takk fyrir jafnrétti til námsViðhorf foreldra til menntunar barna sinna er sá þáttur sem hefur mest áhrif á velferð þeirra og árangur í skóla. Jákvæðir og virkir foreldrar bæta skólastarfið og auka áhuga og metnað barnanna og styðja við mikilvægt starf kennarans. Sem betur fer taka foreldrar sífellt virkari þátt í skólastarfi barna sinna. Sú þátttaka er veigamikil ástæða fyrir þeim góða árangri sem náðst hefur. Annar þáttur sem oft er vanmetinn er sá jöfnuður sem einkennir íslenskt skólakerfi og er okkar dýrmætasta sérstaða. Jöfnuðurinn í kerfinu okkar kemur skýrt fram í alþjóðlegum rannsóknum og er öfundarefni annarra þjóða. Niðurstöður nýjustu viðhorfskönnunar sýna að við náum árangri með því að halda áfram að setja markið hátt. Börn og unglingar í Reykjavík eiga bestu tækifæri skilið, jafnt í námi sem félagsstarfi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon skrifar Skoðun Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Átta atriði sem sýna fram á vanda hávaxtastefnunnar Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun 50 þúsund nýir íbúar – Hvernig tryggjum við samheldni? Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Framtíð nemenda í fyrsta sæti í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að setjast í fyrsta sinn á skólabekk Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ferðalag úr fangelsi hugans Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hraðahindranir fyrir strætó Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Íslenzkir sambandsríkissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Garðurinn okkar fyllist af illgresi Davíð Bergmann skrifar Skoðun Nýtt landsframlag – og hvað svo? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Fágætir dýrgripir í Vestmannaeyjum Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar Sjá meira
Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar