Innlent

Guðbjartur með örugga kosningu í 1. sætið

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hlaut afgerandi fylgi í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, í póstkosningu þar sem kjörsókn var tæp 47 prósent.

Ólína Þorvarðardóttir hlaut annað sætið, Hlédís Sveinsdóttir það þriðja og Hörður Ríkharðsson það fjórða.

Þar sem svonefndri fléttulistaaðferð er beitt, færist Hörður upp í þriðja sætið og Hlédís niður í það fjórða, en flokkurinn hefur nú tvo þingmenn í kjördæminu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×