Innlent

Þyrla sótti alvarlega veika konu á Snæfellsnesi

Kona veiktist alvarlega vestur á Snæfellsnesi í nótt og þurfti að komast á sjúkrahús hið bráðasta.

Læknir óskaði eftir þyrlu Gæslunnar til að sækja konuna, en hún var flutt af stað til móts við þyrluna í sjúkrabíl.

Þyrlan og sjúkrabíllinn mætttust á sunnanverðu Nesinu, þar sem þyrlan lenti á þjóðveginum , tók konuna um borð og flutti hana á Landsspítalann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×