Innlent

Ástþór ætlar ekki að kjósa

BBI skrifar
Ástþór Magnússon ætlar ekki að kjósa á morgun og lítur svo á að kosningarnar séu skrípaleikur.

„Ég lít svo á að þessar kosningar séu ólögmætar og að innanríkisráðuneytið sé búið að ógilda kosningarnar vegna þess hvernig þeir fóru með mitt framboð og ógildingu á því," segir Ástþór. „Þeir hefðu geta afgreitt þetta mál með allt öðrum hætti svo allir væru sáttir en þeir gerðu það ekki."

Einn maður sem vann við framboð Ástþórs var vændur um að hafa falsað undirskriftir á framboðslista, að sögn Ástþórs. Í kjölfarið var framboð Ástþórs ógilt og honum meinað að bjóða sig fram til forseta. „Það liggja engar sannanir fyrir því, lögreglan hefur ekki yfirheyrt manninn, rannsókn er ekki lokið og enginn úrskurður hefur verið kveðinn upp," segir Ástþór. Hann veltir því fyrir sér hvort kosningarnar verði ógiltar þegar upp verður staðið vegna þessa.

Ástþór er þess fullviss að hann hafi með framboðum sínum í gegnum tíðina breytt forsetaembættinu og landslaginu í íslenskum stjórnmálum, en Pawel Bartoszek leiðir að þessu líkum í grein í Fréttablaðinu í dag.

„Þegar ég bauð mig fyrst fram lagði ég mikla áherslu á beint lýðræði. Þá var enginn að tala um þetta. Nú talar fólk ekki um annað," segir Ástþór sem hefur upp á síðkastið hvatt til þess að hraðbankar yrðu notaðir til að virkja beint lýðræði.

Hann er handviss um að völd forsetans hafi aukist vegna framboða hans. Þess vegna hafi hann í raun borið sigur úr býtum að vissu leyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×