Kæra lausagöngu sauðfjár Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. september 2012 06:30 Deilt er um lausagöngu sauðfjár í Dalabyggð. Þar þykir landeigendum á Erpsstöðum sem eigendur kindanna ættu að gæta þess að þær valdi ekki hættu og gangi á annarra manna lönd. Fréttablaðið/Vilhelm
Ábúendur á Erpsstöðum í Miðdölum í Dalabyggð hafa kært til lögreglu lausagöngu sauðfjár í sveitinni. Vísað er til kafla um ágang afréttarpenings í lögum um afréttarmálefni, fjallskil og fleira. Þar kemur fram að komi til ágangs búfjár sem heimilt sé að hafa í heimahögum beri sveitarstjórn að „láta smala ágangsfénaði og reka þangað, sem hann á að vera, á kostnað eigenda", en í lögunum kemur jafnframt fram að sinni sveitarstjórn ekki skyldum sínum í þessum efnum, að mati lögreglustjóra, skuli hann láta smala ágangsfénaði á kostnað eigenda. Erindi ábúenda á Erpsstöðum var í ágúst tekið fyrir bæði í byggðarráði og sveitarstjórn Dalabyggðar. Í afgreiðslu sveitarstjórnar frá 21. ágúst er bent á að í Dalabyggð séu engir afréttir, heldur skiptist landið í heimalönd og önnur beitilönd sem nytjuð séu sem sumarhagar. Því eru ekki taldar forsendur til að sveitarstjórn eða fjallskilanefnd fyrirskipi smölun á svæðinu. „Sveitarstjórn tekur undir að brýnt sé að fjárheldar veggirðingar séu með vegum og hvetur Vegagerðina og landeigendur til að gera stórátak í þessu efni," segir í bókun sveitarstjórnar. „Við erum í miðri sveitinni og eigum ekki land að neinum afrétti," segir Helga Elínborg Guðmundsdóttir, bóndi á Erpsstöðum. „Og frá byrjun júlí streymir fé niður dalinn og frá afréttinum og dvelur löngum stundum á túnunum okkar." Hún segist vita að tún séu illa girt hjá þeim, en bendir á að fénaðurinn þurfi að fara í gegn um aðrar girðingar áður en komi að þeirra landi. „Girðingarnar sem eiga að halda þeim á afréttinum eru ónýtar og þetta bara afgreitt sem okkar mál. Síðan eru kindurnar náttúrulega líka að vappa hér uppi á þjóðvegi númer 60 [Vestfjarðavegi] sem liggur í gegn um landið okkar," bætir hún við og kveðst vita til þess að þar hafi í sumar verið ekið á að minnsta kosti tvö lömb. „Núna er komið haust og farið að dimma klukkan tíu og stórhætta sem af þessu stafar." Guðbrandur Þorkelsson, formaður fjallskilanefndar í Dalabyggð, segir meirihluta sauðfjár bænda í sveitarfélaginu halda sig uppi í fjöllum þar sem hann eigi að vera, en viðurkennir þó að undanfarin þrjú ár hafi stóraukist sá fjöldi sem er niðri í byggð yfir sumartímann. Hann segir lítið hægt að gera í þessu, annað en að Vegagerðin sinni því betur að girða af vegi.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Sjá meira