Lofuðu að elska Verslunarskólann að eilífu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 7. september 2012 22:03
Nýnemar í Verslunarskóla Íslands sóru þess eið í dag að elska skólann um alla ævi og voru þar með vígðir inn sem Verslingar við hátíðlega athöfn. Nemendafélag skólans ákvað í stað hefðbundnar busunar að standa fyrir formlegri athöfn og innvígslu. Nemendur á fyrsta ári í Verzlunarskóla Íslands voru sóttir með látum í stofur sínar í morgun þegar hinn árlegi nýnemadagur hófst. Mikil eftirvænting var meðal nýnemanna þegar þeir marseruðu saman í röð niður á samkomustað Verzlinga Marmarann þar sem eldri samnemendur biðu spenntir. „Þetta er semi stress samt, þetta er alveg eins og einhver athöfn hérna,“ segja nýnemarnir Ragnar og Styrmir. Formaður skemmtinefndar skólans segir tilmæli frá skólastjórn hafa verið að breyta til frá hinum hefðbundnu busunum „Þetta hefur alltaf verið einhver busun, verið að láta þau borða eitthvað. Við erum að taka þetta í allt aðra átt. Erum bara með formlega athöfn þar sem við förum með eið og sverjum þau inn í skólann," sagði Leifur Hreggviðsson, formaður skemmtinefndar NFVÍ í samtali við fréttakonu. Svo sneri hann sér að nýnemunum sem stóðu á marmaranum og hrópaði yfir þá: Dagurinn í dag markar upphaf fjögurra bestu ára lífs ykkar. Ég vil biðja ykkur að mynda vaff með hægri hendi og hafa svo eftir mér. Svo var farið með eið þar sem nýnemarnir hétu Verslunarskólanum ævarandi ást. Eftir athöfnina var boðið upp á skúffukökur og mjólk og voru hinir nývígðu Verzlingar ánægðir með óhefðbundnu busuninaVoruð þið að búast við einhverju öðru hérna í dag? spyr fréttakona. „Já eggjum og einhverju ógeði," segja Sylvía og Elma, nýnemar og segjast ánægðar að sú varð ekki raunin.Líður ykkur eitthvað öðruvísi núna eftir þessa innvígslu? spyr fréttakona. „Miklu betur. Ég er bara nýr maður," segir Esjar, nýnemi. Hópurinn hélt síðan út á land í nýnemaferð þar sem fjörið mun halda áfram fram eftir nóttu.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Sjá meira