Benni ákærður fyrir vanskil á ársreikningi stigur@frettabladid.is skrifar 20. desember 2012 06:00 Ósáttur Benni er hundfúll með að vera gert að skila ársreikningi. Hann vill ekki að samkeppnisaðilar komist í allar upplýsingar um reksturinn.Fréttablaðið/vilhelm „
Það er algjörlega galið dæmi að sérstakur saksóknari sé að vesenast í Bílabúð Benna með þetta,“ segir Benedikt Eyjólfsson í Bílabúð Benna, sem hefur verið ákærður fyrir að skila ekki ársreikningi ársins 2010. Ákæran verður þingfest 18. janúar. Vanskil á ársreikningum eru refsiverð og varða sektum. Benedikt telur þessi lög hins vegar gölluð. „Mér finnst þessi skil til ársreikningaskrár alveg út í hött,“ segir hann. Upplýsingarnar sem fram komi í ársreikningum komi ekki öllum við. „Þær koma skattinum og opinberum stofnunum við, en almenningi kemur þetta ekkert við.“ Hann segist hafa staðið skil á öllu sem máli skipti. „Þetta er 38 ára gamalt fyrirtæki sem hefur skilað skattskýrslu á réttum tíma í hvert einasta skipti, borgað alla sína skatta og hefur aldrei nokkurn tímann fengið neitt niðurfellt. Samkeppniseftirlitið bað mig um ársskýrslur út af skoðun á bílamarkaðnum um daginn – ég skilaði þeim öllum.“ Benedikt telur að það gæti beinlínis skaðað fyrirtækið að skila ársreikningum. „Við höfum verið í ósanngjarnri samkeppni við banka undanfarin ár og þess vegna höfum við talið það vera samkeppnissjónarmið að skila þessu ekki inn,“ útskýrir hann. „Ég er alveg sammála því að það eigi að koma í veg fyrir kennitöluflakk eins og er verið að tala um núna og það er alveg klárt að almenningshlutafélög á markaði eiga að skila ársreikningi á þriggja mánaða fresti.“ Þetta finnist honum þó ekki eiga við um einkafyrirtæki. „Það sem mér finnst fáránlegt er að sérstakur saksóknari, sem hefur nóg á sinni könnu, sé að eltast við einkafyrirtæki sem skila öllu sínu til ríkisins og eyða tíma og peningunum þínum og mínum í svona fáránleg mál. Þetta er bara eins og hann væri úti á Keflavíkurvegi að mæla menn á 95 – sem er ólöglegt – á góðum sumardegi.“
Tengdar fréttir Lögum breytt vegna BM Vallár Í upphafi aldarinnar voru Víglundur Þorsteinsson og aðrir stjórnendur BM Vallár ákærðir fyrir að trassa að skila ársreikningum. Víglundur hefur alla tíð verið sömu skoðunar og Benedikt; að óeðlilegt sé að einkafyrirtækjum sé gert að skila slíkum reikningum. 20. desember 2012 06:00 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Sjá meira
Lögum breytt vegna BM Vallár Í upphafi aldarinnar voru Víglundur Þorsteinsson og aðrir stjórnendur BM Vallár ákærðir fyrir að trassa að skila ársreikningum. Víglundur hefur alla tíð verið sömu skoðunar og Benedikt; að óeðlilegt sé að einkafyrirtækjum sé gert að skila slíkum reikningum. 20. desember 2012 06:00