Innlent

Ólafur Ragnar og Þóra hafa langmest fylgi

Ólafur Ragnar og Þóra Arnórsdóttir mælast með langmest fylgi af forsetaframbjóðendunum sex.
Ólafur Ragnar og Þóra Arnórsdóttir mælast með langmest fylgi af forsetaframbjóðendunum sex. mynd/vísir.is
Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir mælast með langmest fylgi af forsetaframbjóðendunum sex, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Ólafur Ragnar mælist með tæplega 46 prósent fylgi og Þóra með ríflega 39 prósent fylgi. Ari Trausti mælist með rúmlega 9 prósent fylgi en aðrir frambjóðendur minna. Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem gerð var fyrstu vikuna í júní. 1500 voru valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og svarhlutfall var 61 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×