Innlent

Kveiktu í fjórum tonnum af flugeldum og tertum

Litskrúðugar eldglæringar stigu til himins við undirleik mikilla sprenginga og hverskonar ýlfra, þegar sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar kveiktu í fjórum tonnum af flugeldum og tertum í sandgrifju við Stapafell á Reykjanesi í gær.

Það var þó ekki svo að Gæslumenn væru að halda upp á daginn, heldur voru þetta útrunnir skoteldar frá Landsbjörgu. Þeir voru settir í opinn gám og svo kveikt í öllu saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×