"Við erum bara hrædd og kvíðin" Karen Kjartansdóttir skrifar 25. desember 2012 18:45 Mikið hefur mætt á sonum Katrínar Lilju. Sævar Ingi, 17 ára sonur hennar, fæddist með sjúkdóm sem hefur valdið því að nýru hans eru hætt að starfa og bróðir hans Adam Ingi, er átta ára og er dvergvaxinn. Mynd/Stöð 2
Móðir drengs sem lengi hefur beðið eftir nýra vonast til þess að drengurinn hennar geti farið í aðgerð í maí. Hún vonaðist til þess að hann gæti farið í janúar en hann var of veikur til að það væri hægt. Hún vonar að hann lifi biðina af. Mikið hefur mætt á sonum Katrínar Lilju. Sævar Ingi, 17 ára sonur hennar, fæddist með sjúkdóm sem hefur valdið því að nýru hans eru hætt að starfa og þarf hann að fara í kviðskilun sex sinnum á sólarhring. Hann bíður eftir því að komast í nýrnaígræðslu. Bróðir hans Adam Ingi, er átta ára og dvergvaxinn. Hann gekkst undir stóra aðgerð í nóvember og því að nota hjólastól um þessar mundir því hann má ekki stíga í fæturnar fyrr en í janúar. „Við reyndum að komast inn í janúar en Sævar Ingi var of veikur til þess að það væri hægt að stefna að því þannig við misstum af þeirri lest. Það er því stefnt að því að hann fari í maí en þá kemur læknirinn sem gerir þessar aðgerðir næst til landsins," segir Katrín Lilja Gunnarsdóttir. Sævar Ingi hefur verið mjög lasinn frá því í september og hefur jafnvel þurft að halda honum sofandi í öndunarvél. Katrín Lilja segir þau því vera hrædd og kvíðinn. „Við erum bara hrædd og kvíðin. Þetta er búið að vera óskaplega erfiður tími og mikið af óvæntum uppákomum sem maður óskar ekki eftir." Katrín er einstæð móðir og hefur ekki mikið á milli handanna og þarf að veita drengjunum sínum mikla umönnun í veikindum þeirra. Fjölskyldan ber sig þó vel og erfiðleikarnir hafa ekki gert bræðurna og móður þeirra kvartsár heldur eru þau þakklát fyrir þá góðvild sem þau hafa fengið að finna í gegnum tíðina. Meðal annars hefur fólk boðist til að gefa Sævari nýra, þá hefur líkamsræktarstöðin Hress í Hafnarfriði styrkt þau rausnarlega og um daginn fékk Katrín óvænta jólagjöf frá ókunnri konu sem kom óvænt heim til hennar og rétti umslag. „Ég sagði hvað er þetta væri en hún sagði bara gleðileg jól og ég fann að hún vildi ekki vera viðstödd þegar ég opnaði umslagið," segir Katrín. Í umslaginu reyndust óvænt vera 90 þúsund krónur frá vinveittu fólki sem styrkir góð málefni í stað þess að gefa hvoru öðru gjafir. „Ég veit ekkert hvaða fólk þetta er, ég kannaðist ekki við þessa konu og þessu fylgdu enginn nöfn heldur var bara lítil jólakveðja þarna frá vinahóp." Og þetta hefur komið sér vel? „Heldur betur og ég vil bara nota tækifærið og þakka kærlega fyrir."
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira