Innlent

"Ég lamdi eins hratt og ég gat með þessari sleggju"

Túlkun Halldórs Baldurssonar á aðalmeðferðinni.
Túlkun Halldórs Baldurssonar á aðalmeðferðinni. MYND/HALLDÓR BALDURSSON
Sakborningar, brotaþolar og vitni hafa nú gefið skýrslu í máli ákæruvaldsins gegn Annþóri Karlssyni og Berki Birgissyni og átta öðrum sakborningum.

Ákæran er í fimm liðum en sá fyrsti tekur til líkamsárásar sem átti sér stað í Mosfellsbæ 4. janúar árið 2012. Annþóri og Berki er gefið að sök að hafa skipulagt árásina. Sjö aðrir eru sakaðir um að hafa tekið þátt í henni.

Ljóst er að árásin á rætur að rekja til fjölskylduerja. Einn sakborningur, Smári Valgeirsson, er barnsfaðir fóstursystur Bergs Más Ágústssonar, húsráðandi í Mosfellsbæ og brotaþola í málinu. Samband þeirra hefur einkennst af erjum og hefur Bergur Már átt aðild að þessum erjum.

Fram kom að Bergur Már hafði farið að heimili eins sakborningsins í Hafnarfirði, sama kvöld og árásin í Mosfellsbæ átti sér stað. Hann sagðist hafa farið þangað ásamt nokkrum öðrum og slagsmál hafi brotist út. Sá sem kom til dyra, Sigmundur Geir Helgason, sakborningur, var laminn í höfuðið með gaddakylfu. Þá var rúða brotin í sömu andrá og fékk annar sakborningur yfir sig glerbrot. Að svo komnu hélt Bergur Már og aðrir brotaþolar á brott.

Þeir sem urðu fyrir árásinni ákváðu, eftir heimsókn á slysadeild, að halda heim til Berg Más og fóru þangað ásamt nokkrum öðrum. Við skýrslugjöf sögðu sakborningar að tilgangur heimsóknarinnar hafi verið að innheimta skuld vegna árásarinnar í Hafnarfirði.

„Það var búið að berja mig með gaddakylfu, skilurðu, ég átti ekki að fara af spítalanum, ég átti ekki að vera þarna," sagði Sigmundur.

MYND/HALLDÓR BALDURSSON
Annþór sagði í skýrslu sinni að slíkt væri venja að gera þegar menn séu beittir órétti - „þannig er bara kúltúrinn menn leita réttar síns.

„Við ákváðum að fara þangað og bjóða honum að borga skaðabætur fyrir árásina," sagði Smári. „Leysa þetta í góðu."

Annþór og Börkur voru þegar í íbúðinni þegar sakborningarnir komu á staðinn, í þeim tilgangi að innheimta minniháttar skuld sem Bergur Már skuldaði Annþóri. Aukalega voru þrír menn í íbúðinni.

Annþór sagði í vitnisburði sínum að hann hefði heyrt af fyrirætlunum meðsakborninga sinna fyrr um daginn. Vildi hann fá að ganga frá sínu máli fyrst. „Við náðum ekkert að ræða um þennan pening," sagði Annþór. „Þeir voru allir í íbúðinni berir að ofan og dópaðir. Bergur Már var með lítinn hamar, karatekylfu, karatestjörnu í beltinu, einn var með lögreglukylfu, annar með hafnarboltakylfu úr áli. Þeir töluðu bara um það sem hafði gerst fyrr um kvöldið. Þá segi ég þeim að strákarnir væru fyrir utan."

Brotaþolar sem voru í íbúðinni þvertóku fyrir það í héraðsdómi að hafa verið með þessi vopn.

Tvennum sögum fer af því hvort að húsráðandi hafi gefið leyfi fyrir því að sakborningunum hafi verið hleypt inn. Brotaþolar sem voru í íbúðinni harðneita að slíkt leyfi hafi verið gefið.

En inn komu þeir og upphófust mikil slagsmál. „Annþór og Börkur leiddu þessa árás," sagði Bergur Már. „Íbúðin fylltist af fólki. Það voru handlóð og eitthvað fljúgandi þarna um."

MYND/HALLDÓR BALDURSSON
„Smári var með sleggjuna berjandi allt og alla," sagði einn sakborningur. „Sleggjan var þarna úti um allt. Annþór gerði ekki neitt, hann tók einn strák og gekk út með hann."

„Ég lamdi eins hratt og ég gat með þessari sleggju," sagði Smári en hann er jafnframt barnsfaðirinn. Svo virðist sem að helstu átökin hafi verið á milli hans og Berg Más, húsráðanda. „Ég missti það bara. Ég hitti hann ekkert oft, lamdi aðallega í hendurnar og búkinn. Hann féll í sófann og ég lamdi hann."

„Þetta er plast-sleggja sem notuð er við að slá ís af skipum," sagði Smári eftir að verjandi forvitnaðist um bareflið.

Smári viðurkenndi þannig að hafa verið með sleggjuna. Meðsakborningar hans sem voru á staðnum sögðust þó ekki hafa verið vopnaðir heldur notað það sem hendi var næst.

Þegar einn sakborningur var beðinn um að lýsa hlutverki sínu í áflogunum sagði hann: „Hvaða hlutverki? Þetta er engin hlutverkaleikur.

Slagsmálin dreifðust um íbúðina á meðan þessu stóð. Það var ýmist barist inn í svefnherbergi húsráðanda, í anddyrinu eða inni á baðherberginu.

„Ég stóð þarna og braut einn spegil," sagði einn sakborningur á meðan annar sagðist hafa brotið gler.

Bergur Már, húsráðandi, gaf skýrslu í morgun. Hann gat ekki staðfest það sem hann hafði áður sagt um hver hafði lamið sig með sleggjunni.

„Þú sagðir í lögregluskýrslu að Börkur hefði slegið þig með sleggjunni?" spurði verjandi Barkar. „Ég veit ekki hver kom inn með sleggjuna. Punktur."

Verjandi Annþórs benti þá á skilaboð sem Bergur hafði sent skjólstæðingi sínum á Facebook þar sem fram komu hótanir í garð Smára. Skilaboðin voru send eftir umrædda árás. „Kannastu við að hafa sagt að búið væri að taka ákvörðun um framhald Smára?" og Bergur Már svaraði á þá leið að hann hafi ætlað að „drepa allt þetta lið."

„Já, það er búið að taka ákvörðun um að það ætti að drepa hann, að hann verði ekkert vandamál. Hann hefur sagt að Smári sé dauður," sagði Annþór um skilaboðin.

Og Smári tók í sama streng: „Hann var búinn að taka ákvörðun um að drepa mig."

Vegna meiðsla sinna taldi Bergur Már sig ekki geta stungið og drepið einn né neinn. „Ég get rétt svo skeint mér sjálfur, hvernig á ég að stinga einhvern?"

Ljóst er að Annþór varð eftir í íbúðinni eftir að sakborningar héldu á brott. „Ég varð eftir til að ræða við Berg um skuldina," sagði Annþór. Síðan kom lögreglan skömmu seinna." Þá sagðist Annþór hafa boðist til að skutla honum á sjúkrahús, enda var hann þverbrotinn á sköflungi og með brotna hnéskel. „Já, mig minnir að Annþór hafi boðist til að gera það," sagði Bergur.

Annþór og Börkur neita því alfarið að hafa skipulagt árásina og segja lítið til í því að þeir hafi tekið þátt í átökunum. Þeir hafi þó orðið vitni af þeim.

„Ég var nú bara að reyna að verða ekki fyrir þessum vopnum" sagði Börkur. „Ég fékk golfkylfu í hnakkann."

„Nú vill Bergur Már meina að þú hafi slegið hann með sleggjunni?" spurði saksóknari og Börkur svaraði: „Það er bara bull, hann lýgur því. Ég er búinn að lesa þessi gögn líka kallinn minn! Hann dró þetta til baka."

Þá báru sakborningar fyrir sig annað hvort mikill fíkniefnanotkun eða minnisleysi þegar kom að því að lýsa atburðarrásinni. Einn sakborningur sagði að lögreglan hefði beðið hann um að segja eitthvað um Börk við skýrslutöku.

Tvö vitni drógu framburð sinn til baka í dag. Þá sagðist eitt vitni, aðspurt um líkamsárás í Hafnarfirði á síðasta ári, hafa logið að lögreglumönnum.

Lögreglumaður sem gaf skýrslu í dag var á meðal fyrstu manna á vettvang í Mosfellsbæ Hann sagði að Annþór hafi verið rólegur. „Það var allt á rúi og stúi í íbúðinni en Annþór var rólegur."

Þegar lögreglumaðurinn sneri aftur á vettvang stuttu seinna var Annþór enn á staðnum. „Ég ræddi við hann, spurði hvað hefði eiginlega gengið á. Hann sagði mér að þetta yrði útkljáð á milli þeirra."

Aðalmeðferð verður haldið áfram á morgun en eitt vitni á eftir að gefa skýrslu.

Verjendur hafa ítrekað gagnrýnt lögreglu fyrir rannsókn málsins. Þá hafa nokkur vitni haft orð á því að rannsóknarlögreglumenn hafi reynt að hafa áhrif á framburð sinn.

Stefnt er að því að aðalmeðferð ljúki á fimmtudaginn með munnlegum málflutningi saksóknara og verjenda.

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×