Innlent

Lögreglan fagnar umræðu

Landssamband lögreglumanna (LL) fagnar umræðu sem orðið hefur um löggæslumál á Íslandi og stöðu lögreglunnar undanfarna daga á Alþingi Íslendinga. Þetta kemur fram í ályktun Landssambands lögreglumanna sem barst til fjölmiðla fyrir stundu.

Ályktunin kemur í kjölfar umræðu um skýrslu sem innanríkisráðuneytið lét gera um stöðu lögreglu og sýndi að lögreglan væri frekar illa stödd miðað við niðurskurð undanfarinnar ára, sem nemur hálfu prósenti. En hátt í 90 lögreglumönnum hefur verið sagt upp frá hruni.

Svo segir í ályktuninni: „Umræðan, sem og tilvitnanir í skýrslu sem innanríkisráðuneytið hefur unnið, staðfestir í einu og öllu málflutning LL undanfarin ár og misseri um stöðu lögreglunnar vegna mikils niðurskurðar til málaflokksins og fækkunar lögreglumanna.

LL hvetur þingmenn þjóðarinnar sem og bæjar- og sveitarstjórnarmenn til málefnalegrar þátttöku í allri umræðu um löggæslumál og leggur um leið áherslu á þá miklu ábyrgð sem hvílir á kjörnum fulltrúum þjóðarinnar er kemur að skipulagi löggæslu á Íslandi og fjárveitingum til málaflokksins."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×