Innlent

Stór togbátur fékk veiðarfærin í skrúfuna

Stór togbátur með níu manna áhöfn fékk veiðarfærin í skrúfuna þegar hann var að veiðum suðvestur af landinu í gærkvöldi, og tók hann að reka.

Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð og kom nálægur togari á vettvang. Vel gekk að koma dráttartaug á milli skipanna og eru þau nú á leið til Grindavíkur og verða væntanlega komin þangað klukkan níu, enda er veður þokkalegt á leiðinni.

Áhöfninni er ekki hætta búin við þessar aðstæður




Fleiri fréttir

Sjá meira


×