Innlent

Flestar konur útskrifast á Íslandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Háskólatorg í Háskóla Íslands.
Háskólatorg í Háskóla Íslands.
Nær 67 prósent af háskólanemum sem útskrifuðust í fyrra voru konur. Til samanburðar voru „aðeins" 63 prósent útskrifaðra háskólanema árið 2011 konur í Svíþjóð, sem er það norrænt ríki sem kemst næst því að jafna metin við Ísland. Þetta og margt annað má lesa í Norrænu hagtöluárbókinni 2012 (Nordisk Statistisk Årbog 2012) sem kemur út í dag. Greint er frá bókinni á vef Hagstofunnar.

Í Danmörku, þar sem konur er fæstar háskólanemar, voru 59 prósent útskrifaðra háskólanema konur í fyrra. Á öllum Norðurlöndunum hefur hlutfall kvenna sem útskrifast úr háskóla aukist undanfarin 10-12 ár og öll þau ár hafa konur verið í meirihluta þeirra sem luku háskólaprófi. Síðustu tölur frá Finnlandi sýna þó fækkun. Íslenskar konur standa sterkast í félagsvísindum, viðskipta- og lögfræði. Annars staðar á Norðurlöndum er flestar konur í félags- og heilbrigðisvísindum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×