Innlent

Línuveiðiskip fékk á sig ólag undan Norðfirði

Engan sakaði þegar 200 tonna línuveiðiskip fékk á sig ólag um fjórtán sjómílur austur af Norðfirði um klukkan fimm í morgun í sérstöku veðrafyrirbrigði sem líkist einskonar hvirfilbyl.

Þar hafði verið þokkalegt veður, en vindur rauk skyndilega upp og sjór ýfðist á skammri stundu, en skömmu eftir ólagið lægði allt aftur.

Þetta fyrirbrigði er þekkt á þessum slóðum og er rakið til óhagstæðs samspils strauma, sjávarfalla og vinds.

Björgunarhringur losnaði af skipinu við ólagið og var tilkynnt um það svo ekki væri farið að óttast um skipið, ef einhver finndi hringinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×