Innlent

Skólinn rýmdur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slökkviliðið sýndi börnunum hvernig á að rýma eld.
Slökkviliðið sýndi börnunum hvernig á að rýma eld. Mynd/ Hugrún.
Hvassaleitisskóli, sem nú er hluti af Háaleitisskóla, var rýmdur klukkan ellefu í morgun. Ástæðan er sú að eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hófst í dag. Í tilefni af því fræddu Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar, og Sverrir Björn Björnsson, formaður LSS, börn í 3. bekk um eldvarnir. Þá fær starfsfólk skólans kennslu í notkun slökkvitækja og eldvarnarteppa. Loks fá börnin að skoða lsökkvi- og sjúkrabíl Slökkviliðsins.

Í tilkynningu vegna dagsins kemur fram að rannsóknir sýni að eldvörnum sé ábótavant á mjög mörgum íslenskum heimilum. Því standi LSS fyrir Eldvarnaátakinu ár hvert. Slökkviliðsmenn um allt land heimsækja þá 3. bekk grunnskóla á sínu svæði og fræða börnin um eldvarnir. Börnin fá afhenta handbók um eldvarnir heimilisins og söguna af baráttu þeirra Loga og Glóðar við Brennu-Varg. Börnin fá einnig að taka þátt í Eldvarnagetrauninn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×