Innlent

Annþór og Börkur fá að ávarpa dóminn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá réttarhöldunum í gær.
Frá réttarhöldunum í gær.
Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson, aðalsakborningar í stóra ofbeldisbrotamálinu, sem flutt er fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag munu fá að ávarpa dóminn eftir að málflutningi lýkur. Þeir kröfðust þess við upphaf málflutnings í dag að þeir fengu að gera grein fyrir máli sínu að loknum málflutningi. Slíkt er ekki venja í dómsmálum sem þessum en ákvörðun um þetta er háð vilja dómarans. Þeir Annþór og Börkur hafa verið viðstaddir málflutninginn í allan dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×