Innlent

Aukið eftirlit við gatnamót

BBI skrifar
Mynd/Stefán Karlsson
Slysum sem verða vegna aksturs á móti rauðu ljósi hefur fækkað jafnt og þétt síðustu ár. Til að hvetja ökumenn til að gera enn betur í framtíðinni mun lögregla halda úti sérstöku auknu eftirliti á völdum ljósastýrðum gatnamótum höfuðborgarsvæðisins næstu daga.

Slys sem rekja má til aksturs gegn rauðu ljósu voru 43 árið 2008 en hafði fækkað niður í 33 árið 2011 samkvæmt tölum Umferðarstofu. Ástæða þykir til að vekja athygli á þessum árangri.

Í nafni frekari umbóta og enn betri árangurs mun lögregla verða með aukið eftirlit á þeim gatnamótum þar sem flest slys hafa orðið síðustu ár. Markmiðið er að hvetja ökumenn til varkárni almennt og vekja athygli á þeirri hættu sem því fylgir ef leiðbeiningum sem gefnar eru um umferð, þar með talin umferðarljós, er ekki fylgt.

Lögregla mun tilkynna hverju sinni hvar hún verður við eftirlit en þessa vikuna verður hún á eftirtöldum stöðum:

27. nóvember Sæbraut/Holtavegur 11-12

27. nóvember Nýbýlavegur/Dalvegur 15-16

28. nóvember Borgartún/Kringlumýrarbraut 11-12

28. nóvember Sæbraut/Kringlumýrarbraut 15-16

28. nóvember Suðurlandsbraut/Kringlumýrarbraut/Laugavegur 16-17

29. nóvember Hringbraut (nýja)/Njarðargata 11-12

29. nóvember Hafnarfjarðarvegur/Reykjavíkurvegur/Álftanesvegur 15-16

29. nóvember Miklabraut/Kringlumýrarbraut 16-17

30. nóvember Breiðholtsbraut/Stekkjarbakki/Skógarsel 11-12

30. nóvember Miklabraut/Háaleitisbraut 15-16

30. nóvember Grensásvegur/Miklabraut 16-17




Fleiri fréttir

Sjá meira


×