Engin heimild var til staðar fyrir ríkisábyrgð handa Farice 19. nóvember 2012 17:17 Farice Farice rekur tvo sæstrengi sem íslensku símafyrirtækin kaupa aðgang að en sá aðgangur er þeim nauðsynlegur til að geta boðið viðskiptavinum upp á netþjónustu.MYND/Farice
Ríkisendurskoðun átelur innanríkisráðuneytið fyrir óljós fjárframlög til Farice ehf., en alls hefur ríkissjóður veitt félaginu 4,2 milljarða króna í framlög frá árinu 2002 til 2011 og það er ljóst að félagið mun þurfa meira fé áður en yfir lýkur. Farice ehf., á og rekur sæstrengi milli Íslands og Evrópu. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um þjónustusamning ríkisins við Farice ehf. frá apríl á þessu ári en ríkissjóður og Landsvirkjun eiga 60% hlut í félaginu. Einnig er fjallað um forsögu samningsins. Meðal annars kemur fram að á árunum 2002 til 2011 lagði ríkissjóður Farice ehf. og forverum þess félags til alls 4,2 milljarða króna í formi hlutafjár, skammtímalána eða áhættugjalda sem breytt var í hlutafé. Jafnframt hefur hann veitt þeim rúmlega 7 milljarða króna ábyrgðir vegna lántöku þeirra. Félögin hafa engu að síður verið rekin með tapi allt frá upphafi og enn sjást ekki merki um verulega tekjuaukningu Farice ehf. frá gagnaverum eins og að hefur verið stefnt. Þá bendir Ríkisendurskoðun einnig á að ekki sé heimilt að veita ríkisábyrgð nema fyrir liggi heimild í lögum og umsögn Ríkisábyrgðasjóðs. Einnig eigi að greiða svokallað áhættugjald þegar slík ábyrgð sé veitt. Að mati Ríkisendurskoðunar voru þessi skilyrði ekki ávallt uppfyllt við veitingu ábyrgða á lánum Farice. Stofnunin beinir því til fjármála- og efnahagsráðuneytisins að það tryggi að skilyrði laga um ríkisábyrgðir séu ávallt uppfyllt þegar þær eru veittar. Enn fremur beri ráðuneytinu að sjá til þess að greinargerð með frumvarpi til fjár- og fjáraukalaga hverju sinni geymi fullnægjandi upplýsingar um umfang og eðli þeira skuldbindinga sem áformað er að stofna til. Ljóst þykir að veita þurfi mun meira fé inn í fyrirtækið áður en yfir lýkur.Hægt er að lesa grein um skýrsluna á vef Ríkisendurskoðanda.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Sjá meira