Fyrstu íbúðirnar byggðar á Hólmavík eftir hrun Kristján Már Unnarsson skrifar 16. október 2012 20:30
Fyrsta húsbyggingin eftir hrun er hafin á Hólmavík. Byggingarfélag heimamanna hóf fyrir helgi að grafa grunn að raðhúsalengju. Kaupfélag Steingrímsfjarðar er stærsti eigandi Fasteignafélagsins Hornsteina, sem reisir raðhúsin, en að því standa einnig Sparisjóður Strandamanna, Hólmadrangur og Trésmiðjan Höfði. Fyrir samfélagið á Hólmavík þykir það tíðindum sæta að ráðist sé í byggingu íbúðarhúss, en síðast var parhús reist þar árið 2008. Jón Eðvald Halldórsson, kaupfélagsstjóri og stjórnarformaður Hornsteina, segir í viðtali í fréttum Stöðvar 2 að þeir heyri af áhuga fjölskyldna að setjast að á Hólmavík en skortur á húsnæði sé hindrun. Þrjár íbúðir verða í nýju raðhúsalengjunni af mismunandi stærðum, frá 70 og upp 105 fermetra, og er stefnt að því að þær fyrstu verði tilbúnar næsta sumar. Hornsteinar gera ráð fyrir að leigja út íbúðirnar, enda kalli markaðurinn á Hólmavík fyrst og fremst eftir leiguhúsnæði, að sögn Jóns Eðvalds. Íbúðirnar verði engu að síður falar til kaups.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira