Kannabisræktandi benti fyrir tilviljun á annan ræktanda 28. september 2012 11:42 Athugið að myndin er úr safni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór á stúfana í Kópavogi í fyrradag eftir að hafa fengið ábendingar um megna kannabislykt sem virtist koma frá tilteknu fjölbýlishúsi. Eftir smá rannsóknarvinnu ákváðu lögreglumennirnir að spyrjast fyrir í einni íbúð hússins, en henni fylgdi bílskúr sem talinn var líklegur vettvangur ræktunar. Eigandi bílskúrsins, maður á fertugsaldri, kannaðist ekki við neitt en gat hins vegar ekki sýnt lögreglumönnum bílskúrinn þar sem hann hafði orðið fyrir því óláni að týna bílskúrshurðaopnaranum. Til að villa um fyrir lögreglumönnum gat hann þess hins vegar að annar íbúi í húsinu, maður á þrítugsaldri, væri miklu líklegri en hann til að vera að rækta efni. Eftir nokkuð þóf gaf maðurinn sig þó og opnaði bílskúrinn. Í fyrstu var ekki annað að sjá en að um venjulegan bílskúr væri að ræða. Annað kom hins vegar á daginn því lögreglumennirnir á vettvangi höfðu mikla reynslu af slíkum málum og sáu strax að ekki var allt með felldu. Þeir höfðu rétt fyrir sér því eftir nokkra leit fundu þeir 35 plöntur. Lögreglumennirnir voru þó ekki alveg hættir því þeir ákváðu að kanna einnig með hinn áðurnefnda íbúa hússins. Honum brá nokkuð við komu lögreglu og vísaði þeim á 73 kannabisplöntur sem hann var að rækta í kjallara hússins. Við yfirheyrslur kom í ljós að mennirnir vissu ekki af ræktun hvors annars þó þeir væru við sömu iðju undir sama þaki.
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Sjá meira