Fagna launahækkun forstjórans 13. september 2012 09:41
Stjórn BHM telur nýlega launahækkun forstjóra LSH staðfesta að laun háskólamenntaðra sérfræðinga hjá ríkinu standast ekki samanburð, hvorki við sambærileg störf á almennum vinnumarkaði né þegar horft er til nágrannalanda. Þetta segir í ályktun sem stjórnin sendi frá sér í morgun. Stjórnin segir að samdráttur í ríkisrekstri undanfarin ár, fækkun starfsfólks, aukið álag og launafrystingar hafi dregið mjög úr aðdráttarafli ríkisins sem vinnustaðar fyrir háskólamenntaða sérfræðinga. Starfsfólk hafi sýnt gífurleg þolgæði við erfiðar aðstæður og ekki sé lengur hægt að ætlast til þess að verkefni og álag aukist en laun standi í stað eða lækki. „Því er það gleðiefni að velferðarráðherra hafi séð ástæðu til að launa sérstaklega þau verk sem hann taldi falla utan starfslýsingar forstjóra LSH. Dæmin um slíkt eru óteljandi og er stjórn BHM því fyllilega fylgjandi að vinnuframlagi umfram starfslýsingu sé mætt með aukagreiðslum," segir í yfirlýsingunni. Stjórn BHM segist því fagna vilja stjórnvalda til að bæta launakjör sérfræðinga í opinberum störfum og færa þau nær því að vera samanburðarhæf og bendir um leið á að mikið verk sé enn óunnið til að svo megi verða. Stjórn BHM segist deila þeim ótta með velferðarráðherra að ella flytjist hæft vel menntað fólk í enn auknum mæli úr landi í leit að bættum kjörum. Síðan segir í ályktuninni að í kjarasamningum BHM við ríkið frá árinu 2011 hafi aðilar sammælst um að endurskoða launakerfi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna í þeim tilgangi að gera ríkið að samkeppnishæfum og eftirsóknarverðum vinnustað. Sú vinna sé nú langt á eftir áætlun.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir E. coli greindist í neysluvatni íbúa Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Sjá meira