Í gæsluvarðhald tveimur dögum eftir kæru 18. september 2012 10:23 Stúlkan fór sjálf á lögreglustöðina og kærði stjúpföður sinn.
Maðurinn sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni var úrskurðaður í gæsluvarðhald tveimur dögum eftir að stúlkan lagði fram kæru á hendur honum. Stúlkan fór sjálf á lögreglustöðina og kærði stjúpföður sinn. Stúlkan kom á lögreglustöðina miðvikudaginn 21. mars á þessu ári. Þar lýsti hún fyrir lögreglu með hvaða hætti maðurinn hefði brotið gegn henni frá því hún var 10 ára gömul, en hún er rúmlega tvítug í dag. Daginn eftir, eða þann 22. mars, var maðurinn yfirheyrður. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness segir að í skýrslutöku hjá lögreglu þann dag sagðist hann ekki trúa því að verið væri að saka hann um kynferðisbrot og kvað ekkert tilefni fyrir slíkum ásökunum. Hann viðurkenndi þó að hafa komið við brjóstin á stúlkunni árið 2008 en sagði það óviljaverk. „Þá játaði hann að hafa snert kynfæri stúlkunnar utan klæða í nokkur skipti. Hann hafi verið að nudda hana og þá snert á henni kynfærin. Þetta hafi hann gert með samþykki stúlkunnar og að móður hennar viðstaddri," segir í dómi héraðsdóm. Í sömu skýrslutöku neitaði maðurinn hinsvegar að hafa haft samræði við stúlkuna. Daginn eftir, eða þann 23. mars, var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald, sem hann hefur setið í óslitið síðan. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa misnotað stúlkuna kynferðislega ítrekað og gróflega yfir margra ára tímabil. Við aðalmeðferð málsins var hann spurður af hverju hann neitaði sakargiftum nær alfarið við fyrstu skýrslugjöf hjá lögreglu svaraði hann því til að hann hafi verið ruglaður og ráðvilltur og ekki vitað hvað væri að gerast. Stúlkan lýsti því fyrir dómi að stjúpfaðir sinn hafi beitt sig kynferðislegu ofbeldi um rúmlega 10 ára skeið, þrisvar til fjórum sinnum í viku. Þetta er einn þyngsti kynferðisbrotadómur sem fallið hefur hér á landi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira