Lífið

Heitustu fitness drottningar heims á leið til landsins

BBI skrifar
Fitness drottningarnar Larissa Reis og Ingrid Romero, sem rífa saman í lóð í myndbandinu hér að ofan, eru á leið til landsins. Þær munu vera við Icelandic Fitness and Health Expo í byrjun nóvember, gefa eiginhandaráritanir, halda námskeið fyrir stúlkur og jafnvel máta sig við íslensk lóð og járnstangir á svipaðan hátt og í myndbandinu hér að ofan.

„Þetta eru heitustu fitness drottningarnar í heiminum í dag. Ég stend við það," segir Hjalti Úrsus, framkvæmdastjóri Fitness Expo, sem fer fram 10.-11. nóvember í íþróttamiðstöðinni á Varmá í Mosfellsbæ. Expo er bæði vörusýning og auk þess hafa einhverjir af helstu vaxtaræktarfrömuðum heims gjarna sótt mótin og sagt gestum hvernig best er að takast á við lóðin.

„Við verðum með crossfit og aflraunir og svo koma þessir heimsþekktu einstaklingar og gefa góð ráð," segir Hjalti. „Þannig að þetta verður svona Woodstock of weight lifting. Þetta er bara Woodstock fyrir þá sem eru að taka á því."

Hjalti Úrsus hnyklar vöðvana.
Larissa Reis og Ingrid Romero verða með lífsstíls-námskeið fyrir stúlkur á Expoinu. „Það er gríðarlegur áhugi fyrir því," segir Hjalti og bendir áhugasömum tilvonandi fitness prinsessum að hafa samband á netfangið hjaltiar@simnet.is til að nálgast frekari upplýsingar.

Hjalti telur að Larissa sé sú besta í fitnessheiminum í dag. Ingrid leikur hins vegar vampíru í fjórðu seríunni af True Blood sem nú er verið að sýna á Stöð 2 sem Hjalti telur til þess fallið að auka enn áhugann á tvíeykinu þegar þær koma til landsins.

Á hlekknum hér að ofan má sjá stúlkurnar taka á því í líkamsræktarstöð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.