Íslenskt forrit upplýsir áhorfendur um allt í kvikmyndinni BBI skrifar 20. ágúst 2012 11:58 Skjáskot úr kvikmyndinni Drive með Ryan Gosling. Forritið sýnir hvaða jakka leikarinn klæðist.
Íslenskt forrit fyrir snjallsíma og tölvur sem fylgist með kvikmyndum um leið og maður horfir á þær og veitir upplýsingar um allt sem kemur þar fyrir er nú í þróun. Fyrirtækið Stream Tags sem hannar forritið tók þátt í nýsköpunarverkefninu Startup Reykjavík í sumar og kynnti afraksturinn fyrir fjárfestum á síðasta föstudag. Nú standa yfir viðræður við fjárfesta og aðra sem vilja koma að verkefninu en stefnan er sett á Bandaríkin. Óskar Örn Arnarson, forstjóri og stofnandi fyrirtækisins, segir að verkefnið Startup Reykjavík hafi verið afar gagnlegt, en með verkefninu fengu 10 fyrirtæki aðstöðu og fjármagn til að vinna að viðskiptahugmyndum sínum. Verkefnið var unnið í samstarfi við Arion banka og frumkvöðlasetranna Innovit og Klak. Fyrirtækin fengu tveggja milljóna króna fjárfestingu frá Arion banka í skiptum fyrir 6% hlutafé í fyrirtækjunum. Auk þess gátu fyrirtækin nýtt sér dýrmætt tengslanet Innovit og Klak og fengu aðstoð frá þekktum aðilum í viðskiptalífinu. „Það besta við þetta var auðvitað tengslanetið og aðstoðin. Peningarnir voru bara auka bónus," segir Óskar en fyrirtækið var sérstaklega stofnað til að komast inn í Startup Reykjavík. Hugmyndin er aftur á móti nokkuð eldri.Stream Tags þríeykið sem þróaði hugmyndina.Forritið er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur og tengir sig við gagnagrunn á netinu. Þegar einstaklingur horfir á kvikmynd hlustar forritið á hljóðið í myndinni, fylgist með hvað er að gerast og veitir upplýsingar um allt sem hugsast getur í myndinni, t.d. hvaða leikari er á skjánum, hvaða lag er að spilast, hvaða bílategund keyrir framhjá, hvar atriðið er tekið eða hvers kyns fötum söguhetjan klæðist. Þannig getur áhorfandinn verið margfalt upplýstari en áður þegar hann horfir á kvikmynd. Hugmyndin vakti töluverða athygli þegar fyrirtækin sem tóku þátt í Startup Reykjavík sýndu afrakstur sinn á föstudaginn var. Í kjölfarið eru margs konar samningarviðræður hafnar en Óskar getur lítið gefið upp um þær á þessum tímapunkti. Hugmyndin verður kynnt erlendis fljótlega og um leið og forritið verður tilbúið verður stefnan sett á Bandaríkin. Óskar segir að vissulega þurfi töluvert stóran gagnagrunn svo forritið gangi upp. „Þetta er samt ekki jafnmikið vandamál og fólk heldur. Það er til svo mikið af gagnagrunnum á netinu, t.d. byssur í bíómyndum eða bílar í bíómyndum. Forritið mun bara keyra þessa gagnagrunna saman," segir hann.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Sjá meira