Frumvarp um flýtimeðferð gengislána naut aldrei stuðnings stjórnarliða Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. ágúst 2012 13:02 Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi alþingismaður.
Frumvarp þingmanns Sjálfstæðisflokksins um flýtimeðferð gengislánamála fyrir dómstólum var þrívegis flutt en málið hlaut aldrei hljómgrunn meðal stjórnarþingmanna. Formaður flokksins segir að núverandi óvissuástand varðandi gengislánin fyrir dómstólum sé því heimatilbúinn vandi. Helgi Hjörvar formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sagði í kvöldfréttum okkar í gær að hann vildi skoða hvort hægt væri að breyta lögum þannig að endurkröfur skuldara á fjármálafyrirtæki fyrndust ekki. Eins og fréttastofa hefur greint frá gætu 12-24 mánuðir verið í að óvissu vegna gengislánamála verði eytt en 11 prófmál voru höfðuð til að fá leyst úr flækjunni. Samkvæmt dekkstu sviðsmynd FME gætu bankarnir þurft að færa niður lán upp á 165 milljarða króna til viðbótar við það sem nú þegar hefur verið gert. Uppfært: Samkvæmt upplýsingum frá FME hafa bankarnir nú þegar fært niður 75 milljarða króna af þessum 165. Þetta eru því 90 milljarðar króna til viðbótar sem bankarnir gætu þurft að færa niður. Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og fyrrverandi þingmaður flutti frumvarp árið 2010 um að bætt yrði við ákvæði í lög um meðferð einkamála um flýtimeðferð mála vegna gengistryggðra lána og verðtryggðra lána. Bæði FME og Seðlabankinn skiluðu umsögnum við frumvarpið og gerðu ekki athugasemdir við þann málslið þess er snýr að gengislánum. Frumvarpið var síðan endurflutt tvívegis, en fékk aldrei hljómgrunn meðal stjórnarþingmanna. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir á vefsíðu sinni á Facebook að stjórnarflokkarnir hafi aldrei sinnt frumvarpinu, heldur kæft það á hverju þinginu á eftir öðru. Óvissan um stöðu gengistryggðra lána sé því ekkert annað en „heimatilbúinn vandi." Sigurð Kára grunar að frumvarpið hafi ekki notið stuðnings því það hafi komið úr vitlausri átt. „Ég fékk aldrei neinar útskýringar á því. Þegar málið var lagt fram varð ég ekki var við að neinn sem lét sig málið varða setti sig upp á móti því að veita þessum málum flýtimeðferð í dómskerfinu, en mig grunar að ástæðan hafi verið sú að frumvarpið var lagt fram af þáverandi þingmanni stjórnarandstöðu og vegna þess hafi það ekki verið samþykkt og afgreitt, eins sorglegt og það er," segir Sigurður Kári í samtali við fréttastofu. Hann segist í engum vafa um að önnur staða væri uppi ef frumvarpið hefði verið afgreitt. Í umsögn Dómstólaráðs um frumvarpið, sem ekki er að finna á vef þingsins, en fréttastofa hefur undir höndum, kemur fram það mat formanns dómstólaráðs, Símons Sigvaldasonar, að hægt sé að ná sama markmiði með samþykki lögmanna undir rekstri máls. Í kjölfar hrunsins hafi verið rekin prófmál um mikilvæg úrlausnarefni og með samþykki lögmanna hafi allir frestir verið styttir frá því sem nú er. Þá hafi dómstjórar tekið mikilvæg mál fram fyrir og látið flytja þau strax. Eins og að framan greinir gætu 12-24 mánuðir verið í að það takist að greiða úr flækjunni varðandi uppgjör gengistryggðra lána. Málshraðinn hefur því ekki verið meiri en raun ber vitni. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Sjá meira