Ofbeldismenn sem meiða börn eru oftast undir áhrifum áfengis Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. ágúst 2012 16:44 Ofbeldismenn sem beita ofbeldi inni á heimilum eru oftast undir áhrifum áfengis.
Um 68% þeirra ofbeldismanna sem starfsmenn barnaverndar og lögregla hafa afskipti af vegna heimilisofbeldis gagnvart börnum eru undir áhrifum áfengis. Þetta sýna bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar sem unnið er að á vegum Barnaverndastofu. Á vegum velferðarráðuneytisins er nú unnið að rannsókn á aðgerðum barnaverndar vegna barna sem bíða tjón af áfengis- og vímuefnaneyslu foreldra. Erlendar rannsóknir sýna að misnotkun foreldra á áfengi og öðrum vímuefnum er stór þáttur í vanrækslu barna. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hve hátt hlutfall barna sem barnavernd hefur afskipti af hefur orðið fyrir tjóni af völdum neyslu foreldra á áfengi, ólöglegum vímuefnum og lyfjum og einnig að kanna viðbrögð og úrræði barnaverndar, eftir því sem fram kemur í frétt á vef Barnaverndastofu. „Árið 2010 kom út niðurstaða rannsóknar á ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum sem sýndi meðal annars að 59% ofbeldismannanna voru undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar konurnar voru beittar ofbeldinu. Þá sýna bráðabirgðaniðurstöður tilraunaverkefnis á vegum Barnaverndarstofu, þar sem starfsmaður barnaverndar er kallaður til um leið og lögregla vegna ofbeldis þegar börn eru á heimilinu, að um 68% ofbeldismannanna hafa reynst undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna," segir í fréttinni. Þess er vænst að rannsóknin sem nú er unnið að á vegum velferðarráðuneytisins geti leitt í ljós hvort það sé til hagsbóta fyrir börn og foreldra þeirra ef barnavernd nálgast tjón barna vegna áfengis- og vímuefnaneyslu foreldranna sem sérstakt vandamál. Talið er líklegt að slík nálgun geti eflt vitund og aukið árvekni barnaverndar í málum sem þessum og gert stuðningsúrræði markvissari. Rannsóknin byggist á gögnum frá Barnavernd Reykjavíkur á afmörkuðu tímabili og er úrtakið tilkynningar til barnaverndar þar sem getið er um neyslu foreldra á áfengi, ólöglegum vímuefnum og lyfjum. Gögnin verða ekki persónugreinanleg og hefur Persónuvernd veitt leyfi fyrir rannsókninni.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira