Innlent

Hjúkrunarheimilið verður rekið með nýstárlegu sniði

BBI skrifar
Vopnafjörður
Vopnafjörður
Hjúkrunarheimilið Sundabúð á Vopnafirði verður rekið með öðru sniði frá og með næsta ári. Mest áhersla verður lögð á heimaþjónustu. Þjónusta við sjúklinga verður aukin að því leyti að boðið verður upp á kvöld- og helgarþjónustu.

Sá orðrómur komst á kreik að til stæði að loka hjúkrunarheimilinu og sjúklingar yrðu fluttir til Seyðisfjarðar. Sá orðrómur er ekki á rökum reistur. „Þetta er náttúrlega einn af hornsteinunum. Við vitum það alveg og þess vegna ætlum við að reyna að tryggja að það verði þjónusta þarna," segir Þórhallur Harðarson, fulltrúi forstjóra á heilbrigðisstofnun austurlands.

Enn liggur ekki alveg ljóst fyrir hvernig starfseminni verður háttað. Heimahjúkrun mun þó væntanlega hafa mest vægi en einnig verður fólki boðið að dvelja á sjálfri Sundabúð í nokkurs konar þjónustuíbúðum. Með því að bjóða upp á kvöld- og helgarþjónustu í heimahjúkrum gefst sjúklingum færi á að dvelja lengur heima hjá sér án þess að leggjast inn á stofnun, en þetta hefur ekki verið valkostur á svæðinu áður.

„Við teljum að þetta sé nútímalegra og henti Vopnafirði betur, þægilegri þjónusta," segir Þórhallur.

Með formbreytingunni á rekstrinum má búast við einhverjum uppsögnum. Að líkindum munu allir starfsmenn fá uppsagnarbréf en flestir ráðnir aftur til að starfa við heimahjúkrun eða þjónustuíbúðum í Sundabúð. Þó getur farið svo að einhverjir verði ekki ráðnir aftur.

Sundabúð hefur verið órekstrarhæf um árabil og á sínum tíma var mikið talað um að loka henni. Með því að breyta rekstrinum núna er reynt að tryggja að þjónusta verði áfram á Sundabúð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×