Erfiðara að vera nammigrís í Versló Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 23. ágúst 2012 23:44
Hafragrautur og lýsi á morgnanna í stað langloku og kók er meðal þeirra breytinga sem nemendur Verzlunarskóla Íslands gerðu síðasta vetur og er skólinn nú orðinn einn sá heilsusamasti á landinu. Næsta skref er hreyfing og segir skólastjórinn nemendur og kennara hafa gott af því að fara öll saman út að skokka. Verzlunarskóli Íslands hóf þátttöku í verkefninu heilsueflandi framhaldsskóli síðasta haust en verkefnið sem hefur verið starfrækt í tvö ár er unnið í samstarfi við Landlæknisembættið og snýst um að auka heilbrigði og vellíðan í skólum landsins. „Við umbyltum allri aðstöðu og búum til megnið af matnum hérna niðri, boozt og fleira. Þær smyrja sjálfar samlokur og rúnstykki og allur matur er eldaður á staðnum," segir Ingi Ólafsson, skólastjóri Versló.Og allt er þetta góð heilafæða svo nemendurnir læra betur og kennarar kenna betur, segir fréttakona. „Það ætla ég rétt að vona. Ég er nokkuð viss um það að hafragrauturinn og lýsið sem við gefum á morgnanna það skilar sér," svarar Ingi. Í dag fékk Verzló síðan afhent Gulleplið fyrir að hafa skarað fram úr í heilsueflingu en flestir framhaldsskólar landsins taka nú þátt í verkefninu og valdi dómnefnd Verzló úr hópi átta skóla á landinu. „Það var þeirra mat semsagt að þau hefðu náð svo ofboðslega góðum árangri í samhentu átaki, og hér má sjá starfsmenn og nemendur borða sama mat, það hefur farið fram mikil umræða og þróun á verkefninu þannig ég held að þau hafi staðið sig bara ansi hreint vel að gera þetta verkefni algjörlega að sínu," segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra. Forseti nemendafélagsins í Verzló segir það vissulega hafa verið erfitt fyrir suma að gefa nammið upp á bátinn. „En þegar við byrjuðum að spjalla við konurnar í búðinni og smakka matinn þeirra þá var enginn að kvarta lengur," segir Hrafnkell Ásgeirsson, forseti NFVÍ.En nú hafið Kringluna hérna rétt við dyrnar. Fara nammigrísirnir bara þangað yfir? spyr fréttakona. „Þeir geta það sko. En það er alla vega meira vesen fyrir þá, sem er kannski markmiðið með þessu, svarar Hrafnkell.Nú er næsta skref hreyfing, ætla allir að fara út að skokka saman? spyr fréttakona. „Ja mörgum okkar veitir ekki af, ætli við þurfum ekki að gera það, ég reikna með því," svarar Ingi rektor.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira