Innlent

Ótímabært að Jóhanna hætti sem formaður

BBI skrifar
Ráðherra með tvíbura. Katrín Júlíusdóttir.
Ráðherra með tvíbura. Katrín Júlíusdóttir. Mynd/Valli
Katrín Júlíusdóttir, samfylkingarkona og verðandi fjármálaráðherra, fann fyrir miklum stuðningi við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær. Henni finnst algerlega ótímabært að Jóhanna hætti sem formaður flokksins núna.

„Jóhanna er búin að vera niðri í kjallara að undanförnu að grafa og óskapast í kolageymslunni, svo að segja. Nú er hún orðin fín. Af hverju ætti Jóhanna þá að hætta akkurat á þessum tímapunkti þegar við erum farin að sjá til sólar," sagði Katrín í viðtali í útvarpsþættinum Á Sprengisandi í morgun.

Katrín er að koma aftur í stjórnmálin úr fæðingarorlofi og trommar beint inn í fjármálaráðuneytið en Oddný Harðardóttir, sem að undanförnu hefur gegnt embætti fjármálaráðherra, verður óbreyttur þingmaður. Katrín er spennt að koma aftur og hlakkar mikið til að byrja. „Þó það sé alltaf æðislegt að vera heima með börnunum," segir hún.

Fjárlagafrumvarpið er svo gott sem tilbúið. Það verður lagt fram áður en Katrín tekur til starfa en hún mun svo fylgja því gegnum þingið. Spurð hvort von sé á breytingum við komu hennar, t.d. varðandi fyrirhugaða hækkun á gistináttaskatti, segir hún ekki von á neinum kúvendingum þegar hún kemur. „Ég veit að vandað hefur verið til verksins og ég treysti fólkinu sem vann frumvarpið," segir hún. Því mun Katrín ekki beita sér á annan hátt hvað varðar gistinæturnar heldur en Oddný hefur gert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×