Sport

Sá þyngsti á leikunum tapaði frekar létt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Oscar Brayson er hér búinn að leggja Ricardo Blas Jr.
Oscar Brayson er hér búinn að leggja Ricardo Blas Jr. Mynd/AFP
Júdómaðurinn Ricardo Blas Jr frá Gúam er þyngsti keppandinn á Ólympíuleikunum í London en það dugði honum þó ekki að vera 110 kílóum þyngri en keppninautur sinn í dag.

Blas yngri, sem er 218 kíló, er úr leik í júdókeppninni eftir tap á móti hinum 108 kílóa Kúbumanni Oscar Brayson. Brayson vann glímuna létt en hún var í annarri umferð keppninnar.

Ricardo Blas yngri vann hinn 135 kíló Facinas Keita frá Gíneu í 1. umferð og notaði þá þyngd sína til að vinna Keita á Ippon.

Ricardo Blas yngri er 48 kílóum þyngri en næstþyngsti maður en það er Janusz Wojnarowicz sem vegur 170 kílí. Léttasti þyngdarflokkurinn hjá konunum er einmitt 48 kílóa flokkurinn.

Ricardo Blas yngri var að keppa á sínum öðrum leikum en hann var einnig langþyngstur á leikunum í Peking fyrir fjórum árum þrátt fyrir að vera 8 kílóum léttari en hann er núna. Þess má geta að þessu 218 kílóa júdókappi er 185 sentímetrar á hæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×