Telpurnar fluttar til Danmerkur í gær Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 2. júlí 2012 12:11
Telpurnar þrjár, sem voru teknar með lögregluvaldi af móður sinni á föstudag, voru fluttar úr landi síðdegis í gær til Danmerkur. Lögmaður móðurinnar furðar sig á að börnin hafi ekki verið kyrrsett á Íslandi. Við sögðum frá því um helgina að þrjár telpur á aldrinum fimm til átta ára voru teknar af móður sinni með lögregluvaldi á föstudaginn, og af heimili þeirra við Vindakór í Kópavogi. Aðstandendur móðurinnar höfðu safnast saman á staðnum og lögregla kallaði út liðsauka, þar á meðal sérsveitarmenn á merktum lögreglubílum og lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Danskur faðir telpnanna og íslensk móðir þeirra hafa átt í hatrammri deilu um börnin í tvö og hálft ár. Þann 16. janúar á þessu ári var þeim dæmd sameiginlegt forræði yfir börnunum, en lögheimili þeirra skyldi vera hjá föðurnum. Tveimur dögum síðar flytur móðirinn með dæturnar til Íslands, án vitneskju föðurins. Fréttastofa ræddi við lögmann móðurinnar í morgun, Vigdísi Ósk Sveinsdóttur. Hún furðar sig á að barnaverndarnefnd Kópavogs hafi ekki beitt neyðarráðstöfun og óskað eftir því við fulltrúa sýslumanns á vettvangi og lögreglu að stöðva aðgerðina á föstudaginn. Hún segir að sýslumaður hefði getað nýtt lagaheimild til að kyrrsetja börnin á Íslandi vegna nýrra gagna sem liggi fyrir í málinu. Að mati Vigdísar gáfu þessi nýju gögn, sem lúta að ásökunum móður í garð föðurins, fullt tilefni til að rætt yrði við börnin. Þá staðfesti hún að Hreinn Loftsson hæstaréttarlögmaður hefði sent erindi til velferðar- og innanríkisráðherra þar sem hann biðlar til þeirra að koma í veg fyrir að stúlkurnar yrðu fluttar af landi brott og sakar sýslumanninn á Höfn um afdrifarík mistök. Samkvæmt Pressunni segir Hreinn meðal annars í bréfinu: Barnaverndaryfirvöld og velferðarráðherra geta enn gripið inn í og stöðvað þessa ógæfu og ég vona fyrir mitt litla líf að einhvers staðar sé manndómur og kjarkur á æðstu stöðum sem tekur af skarið í þágu barnanna og kyrrsetur þau á meðan málið er rannsakað ofan í kjölinn. Ekki náðist í Hrein í morgun.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Sjá meira