Ónákvæmni í lyfjagjöfum sjúklinga Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 7. júlí 2012 19:45
Hátt í fimm hundruð tilvik komu upp á Landspítalanum í fyrra þar sem lyfjagjöf til sjúklinga var röng. Sérstök vinna er nú í gangi á spítalanum til að fækka slíkum tilfellum. Á síðasta ári komu upp 446 atvik þar sem lyfjagjöf til sjúklinga á Landspítalanum var röng. „Þetta eru ýmiskonar atvik þau lúta að hvernig lyfjafyrirmæli eru, hvernig lyfin eru tekin til og síðan bara þegar sjúklingurinn fær lyfið afhent," segir Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum. Hann segir atvikin misalvarleg en þau alvarlegustu séu þannig að sjúklingarnir hafi fengið röng lyf. „Örfá þeirra eru mjög alvarleg og svo allt niður í það að skipta engu máli og allt þar á milli. Þessi alvarlegustu eru sem betur fer mjög fá. Þetta er mjög þekkt vandamál á alþjóðavísu og þekkt á spítölum hér í nágrannalöndunum og í Bandaríkjunum." Ólafur segir alvarleg lyfjaatvik geta leitt til dauðsfalls. „Það hefur orðið slíkt atvik á spítalanum fyrir allnokkrum árum síðan." Ólafur segir að fyrir tveimur árum hafi verið sett í gang sérstakt verkefni til að hvetja starfsmenn til að skrá lyfjaatvik þar sem skortur var á upplýsingum um þau. Núna sé sérstök vinna í gangi á spítalanum til að fækka atvikum sem þessum og er vonast til að henni verði lokið í haust. „Þarna erum við í sérstöku umbótaverkefni sem snýr að því að bæta fyrirmælin um lyf, lyfjatiltektina sjálfa og síðan það þegar að sjúklingurinn fær lyfið afhent. Þá er lögð áhersla á það við starfsfólkið sem umræðir að það sé vakandi og fylgi alveg sérstökum verklagsreglum til þess að passa að það verði engin mistök. Þetta hermum við eftir bestu spítölum erlendis og fáum sem sagt lánað frá þeim þetta módel og vinnum eftir því og erum viss um að það muni skila árangri."
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Sjá meira