Lífið

„Rándýrt dæmi að taka í spaðann á Leno gamla“

BBI skrifar
Hljómsveitin Of Monsters and men mun halda tónleika í Hljómskálagarðinum laugardaginn 7. júlí. Það verða fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar hérlendis á þessu ári. Þar mun hljómsveitin flytja smelli af plötunni My head is an animal.

Meðlimir hljómsveitarinnar eru spenntir að leyfa löndum sínum loks að heyra hljómana sem ómað hafa um gervöll Bandaríkin síðustu mánuði. „Ég held þetta geti orðið ansi skemmtilegt. Hægt að gera gott kvöld úr þessu," segir Árni Guðjónsson, hljómborðsleikari sveitarinnar.

Áður en Of Monsters and men stíga á svið munu aðrar hljómsveitir keyra upp stemningu. Enn hefur þó ekki verið ákveðið hvaða hljómsveitir það verða. „Við þurfum bara að sjá hverjir eru lausir þetta kvöld," segir Árni. Tónleikarnir verða haldnir í samstarfi við Bylgjuna og verða öllum opnir.

Hljómsveitin hefur staðið í ströngu í tónleikahaldi og kynningarstarfsemi fyrir plötuna sína uppá síðkastið. „Við komum kannski heim svona sex daga inn á milli" segir Árni. Hljómsveitin er nú stödd á landinu en á mánudaginn kemur munu þau halda til Los Angeles til að koma fram í skemmtiþætti Jay Leno. Árna þykir að vonum temmilega „rándýrt dæmi að taka í spaðann á Leno gamla".

Í sömu ferð mun sveitin taka upp myndband við lagið Mountain sound sem verður næsta lag sem fer í spilun hjá sveitinni.

Að sögn Árna er nokkuð langt í að sveitin sendi frá sér nýtt efni. „Næsta plata á að koma út í lok árs 2013 ef ég man rétt," segir Árni en sveitin gerði á dögunum samning um gerð fjögurra breiðskífa við útgáfufyrirtækið Universal. Sá samningur gæti tekið til næstu 10 ára eða svo.

En þó langt sé í að nýtt efni verði gefið út er ekki laust við að ný lög séu byrjuð að mótast. „Já, við erum alltaf að leika okkur eitthvað og skoða nýjar hugmyndir," segir Árni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.