„Rándýrt dæmi að taka í spaðann á Leno gamla“ BBI skrifar 21. júní 2012 15:31
Hljómsveitin Of Monsters and men mun halda tónleika í Hljómskálagarðinum laugardaginn 7. júlí. Það verða fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar hérlendis á þessu ári. Þar mun hljómsveitin flytja smelli af plötunni My head is an animal. Meðlimir hljómsveitarinnar eru spenntir að leyfa löndum sínum loks að heyra hljómana sem ómað hafa um gervöll Bandaríkin síðustu mánuði. „Ég held þetta geti orðið ansi skemmtilegt. Hægt að gera gott kvöld úr þessu," segir Árni Guðjónsson, hljómborðsleikari sveitarinnar. Áður en Of Monsters and men stíga á svið munu aðrar hljómsveitir keyra upp stemningu. Enn hefur þó ekki verið ákveðið hvaða hljómsveitir það verða. „Við þurfum bara að sjá hverjir eru lausir þetta kvöld," segir Árni. Tónleikarnir verða haldnir í samstarfi við Bylgjuna og verða öllum opnir. Hljómsveitin hefur staðið í ströngu í tónleikahaldi og kynningarstarfsemi fyrir plötuna sína uppá síðkastið. „Við komum kannski heim svona sex daga inn á milli" segir Árni. Hljómsveitin er nú stödd á landinu en á mánudaginn kemur munu þau halda til Los Angeles til að koma fram í skemmtiþætti Jay Leno. Árna þykir að vonum temmilega „rándýrt dæmi að taka í spaðann á Leno gamla". Í sömu ferð mun sveitin taka upp myndband við lagið Mountain sound sem verður næsta lag sem fer í spilun hjá sveitinni. Að sögn Árna er nokkuð langt í að sveitin sendi frá sér nýtt efni. „Næsta plata á að koma út í lok árs 2013 ef ég man rétt," segir Árni en sveitin gerði á dögunum samning um gerð fjögurra breiðskífa við útgáfufyrirtækið Universal. Sá samningur gæti tekið til næstu 10 ára eða svo. En þó langt sé í að nýtt efni verði gefið út er ekki laust við að ný lög séu byrjuð að mótast. „Já, við erum alltaf að leika okkur eitthvað og skoða nýjar hugmyndir," segir Árni.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira