Innlent

Öllum frambjóðendum boðið

Vegna ákvörðunar Þóru Arnórsdóttur um að mæta ekki Ólafi Ragnari Grímssyni ein í kappræðum í Hörpu á morgun, hefur verið tekin ákvörðun á fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis að bjóða öllum frambjóðendum í beina útsendingu á Stöð 2 og Vísir.is sem hefst klukkan 18:55 á morgun.

Eins og kunnugt er hafnaði Þóra Arnórsdóttir boði Stöðvar 2 um kappræður í Hörpu annað kvöld. Hún sagði í tilkynningu að henni hugnaðist ekki fyrirkomulagið, sem var að bjóða aðeins þeim frambjóðendum sem hefðu mest fylgi, til kappræðnanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×