Borgarfulltrúi vill meta betur hættuna af hraunflóði 3. júní 2012 13:00 Kjartan Magnússon.
Huga þarf betur að líkum á eldsumbrotum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og hraunsflóðs af völdum þeirra. Þetta segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Hann segir gagnrýni eldfjallasérfræðings á áhættumati Almannavarna réttmæta. Almannavarnir huga ekki nægilega að hættunni sem steðjar að höfuðborgarsvæðinu þegar eldsumbrot verða næst á Reykjanessvæðinu og yfirvöld hafa leyft byggingar á stöðum sem ekki ætti að byggja á. Þetta kom fram í máli Haraldar Sigurðssonar, eins helsta eldfjallasérfræðings heims, í fréttum okkar í gær. Sagði Haraldur undarlegt að í nýlegri 65 síðna skýrslu Almannavarna um áhættumat á höfuðborgarsvæðinu sé eldvirkni sé mjög lítið til umfjöllunar eða aðeins á hálfri blaðsíðu. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, segir gagnrýni Haraldar réttmæta. Líkurnar á eldsumbrotum séu mjög litlar en þeim verði að gefa gaum. „Ég held að þessi gagnrýni sé réttmæt. Þegar skýrslan var lögð fram í borgarráði á sínum tíma vakti það athygli að það var ekki löng umfjöllun um hugsanlega hættu eða tjón sem eldsumbrot í nágrenni Reykjavíkur gæti valdið," segir hann. „Mér fannst þegar þessi skýrsla kom út að það hefði hefði átt að fjalla meira um líkurnar á eldsumbrotum í nágrenni Reykjavíkur. Þess vegna óskuðum við borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks eftir því að frekari vinna færi fram og ég veit ekki betur en verið sé að vinna að því núna," segir Kjartan. Haraldur Sigurðsson, segir að endurskoða þurfi starf Almannavarna hvað þetta varðar. Þá sé mikilvægt að Almannavarnir fái til liðs við sig jarðfræðing eða jarðeðlisfræðing við gerð áhættumats. „Aftur á móti eru þarna leikskólakennarar og rithöfundar og fólk sem kannski ber ekki skyn á áhættuna og áhættumat, sem er viss vísindagrein. Það er engin vafi að það er áhætta á höfuðborgarsvæðinu hvað eldvirkni varðar, það er alveg klárt," segir hann. Haraldur segist ekki vilja hræða fólk, hraunrennsli sé yfirleitt ekki lífshættulegt. Fólk þurfi hins vegar að vera betur upplýst um stöðuna og huga þurfi betur að henni við skipulag byggðar.
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Sjá meira