Innlent

Aflýsa sýningaflugi - þurfa að sækja slasaðan sjómann

Þyrlur Landhelgisgæslunnar.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar. Mynd Vilhelm
Landhelgisgæslan þarf að aflýsa sýningarflugi í Reykjavík og Vestmannaeyjum í dag en þeir fengu tilkynningu um slasaðann sjómann í norskum togara fyrir stundu.

Skipið er statt um 220 mílur utan við Reykjaneshrygg en þyrlur gæslunnar geta ekki flogið lengra en 150 mílur út á sjó. Skipið þarf því að sigla til móts við þyrluna og er áætlað að sjómaðurinn verður sóttur um borð um klukkan sjö í kvöld.

Ekki er ljóst hvert ástand sjómannsins er, en hann fékk vír í höfuðið.

Eins og fyrr segir þá þarf gæslan að aflýsa sýningaflugi í tilefni af sjómannadeginum. Að sögn gæslunnar eru hátt í hundrað bátar úti á sjó á öllu landinu, nær allt skemmtibátar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×