Innlent

Hrædd um að ekkert samráð hafi verið

Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist hrædd um að ekki hafi verið haft samráð við sjómenn og landverkafólk þegar ákveðið var að gera hlé á veiðum. Útgerðarmenn séu í pólitísku verkfalli sem feli í sér ólögmæta árás á stjórnvöld.

Í óundirbúnum fyrispurnartíma á Alþingi í morgun sagði Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks að ríkisstjórnin væri að gera atlögu að sjávarútveginum. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra svaraði fullum hálsi og sagði útvegsmenn hafa gert árásir á ríkisstjórnina.

„Ég held að sjávarútvegurinn sem núna mokar peningum ætti að fara að segja okkur hvar hann fái peningana í þetta og hvort hann telji það hvort það sóma að fara núna fram með ólöglegar aðgerðir sem brjóta gegn lögum til þess að reyna að ná öllu sínu fram," sagði Jóhanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×