Snorri Steinn fer ekki á EM í Serbíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2012 12:45 Snorri Steinn Guðjónsson. Mynd/AFP
Snorri Steinn Guðjónsson verður ekki með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu sem hefst um helgina og Ísland verður því bæði án Ólafs Stefánssonar og Snorra Steins á Evrópumótinu. Þetta er mikið áfall fyrir íslenska liðið enda hefur Snorri Steinn verið aðalleikstjórnandi íslenska liðsins á blómaskeiði þess síðustu ár. Snorri Steinn tilkynnti Guðmundi Guðmundssyni, landsliðsþjálfara, að hann gæfi ekki kost á sér í þetta verkefni þar sem hann ætlaði að vera heima hjá konu sinni og nýfæddri dóttur. Guðmundur er nú þessa stundina að tilkynna landsliðshóp sinn fyrir Evrópumótið. Arnór Atlason er þar með orðinn aðalleikstjórnandi íslenska liðsins en þeir Aron Pálmarsson og Ólafur Bjarki Ragnarsson eru líka til taks. Guðjón Valur Sigurðsson hefur líka spilað stöðu leikstjórnanda en íslenska liðið má ekki við því að missa hann úr vinstra horninu. Snorri Steinn er búinn að vera með á síðustu sex stórmótum íslenska landsliðsins og alls á níu stórmótum frá því að hann var fyrst með á HM 2003. Snorri Steinn hefur skorað 5 mörk að meðaltali á síðustu sex stórmótum (235 mörk í 47 leikjum) en hann var með 3,2 mörk að meðaltali á HM í Svíþjóð í fyrra. Snorri Steinn komst í úrvalslið Ólympíuleikanna 2008 þegar íslenska landsliðið vann silfur í Peking en hann skoraði þá 48 mörk í 8 leikjum eða 6 mörk að meðaltali í leik.
Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Allir Paragvæar fá frí í dag til að fagna Fótbolti Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Fótbolti Keflavík sækir liðsstyrk Körfubolti Fleiri fréttir Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Sjá meira