Mataræði á kynþroskaskeiðinu hefur áhrif á myndun krabbameins Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 20. ágúst 2012 18:30
Það hvað strákar borða á kynþroskaskeiðinu hefur áhrif á það hvort þeir fái blöðruhálskrabbamein síðar á ævinni. Þetta sýnir ný íslensk rannsókn. Jóhanna Eyrún varði doktorsrannsókn sýna í dag í Háskóla Íslands. Rannsóknin var nokkuð umfangsmikil. Kannaðar voru fæðuvenjur fólks fætt á árunum 1905 til 1935 og áhrifin á blöðruhálskrabbamein. „Við sjáum að það virðist greinilega skipta máli hvað þú ert að borða á unga aldri," segir Jóhanna. „Það virðist auka áhættuna á að þú fáir langt gengið mein seinna á ævinni, það eru sem sagt vissar fæðutegundir sem hafa áhrif þar á." Þannig sýnir rannsóknin að það hvað strákar borða á unglingsárunum eða á þeim árum sem þeir eru að verða kynþroska skiptir máli. „Við sjáum að þeir sem drukku mjög mikla mjólk, og við höldum að það hafi verið mjög mikil mjólk, það virðist auka áhersluna og líka mikil neysla á reyktum og söltum fisk. En rúgbrauðið sýnir ákveðna vernd gegn langt gengnu meini í blöðruhálsi." Þá sýnir rannsóknin einnig að það að fólk taki lýsi þegar það eldist getur dregið úr líkum á því að fá blöðruhálskrabbamein. „Það virðist skipta máli að taka lýsi reglulega á efri árum ef þú ert að hugsa um blöðruhálskirtilinn." Hún vonast til að geta rannskaðað betur áhrif mataræðis á krabbamein. Okkur langar mjög mikið að skoða þetta líka fyrir brjóstakrabbamein hjá konum," segir Jóhanna,.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira