Burðardýrið frá Lettlandi og ekki vitað hver skipulagði smyglið Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. ágúst 2012 18:30 Pakki með 700 grömmum af kókaíni hafði verið saumaður undir hárkollu sem hafði verið fest við náttúrulegt hár konunnar. Myndin er úr myndasafni og tengist ekki efni fréttarinnar beint.
Pakki sem innihélt um 700 grömm af kókaíni fannst undir hárkollu sem saumuð hafði verið rækilega við hár rúmlega fertugrar lettneskrar konu sem kom með flugi til Íslands frá Spáni. Hún situr nú í gæsluvarðhaldi. Talið er að efnið hafi verið ætlað til sölu hér á landi og að konan sé burðardýr. Konan sem er frá Lettlandi kom til landsins með flugi frá Alicante á Spáni hinn 2. ágúst síðastliðinn en talið er að hún sér burðardýr fyrir einstaklinga sem vildu koma efninu í dreifingu og sölu hér á landi. Pakkinn með kókaíninu hafði verið rækilega falinn og saumaður undir hárkollu sem konan bar. Konan, sem er rúmlega fertug, hefur einu sinni áður komið til landsins en ekki áður komið við sögu hjá lögreglu. Hún hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 23. ágúst næstkomandi. Ekki liggur fyrir hver skipulagði smyglið, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu er margt sem bendir til þess að konan sjálf, sem þáði greiðslu fyrir, viti ekki hver skipulagði smyglið. Þannig að ekki liggur fyrir hvort höfuðpaurarnir séu Íslendingar, Spánverjar, Lettar eða eitthvað annað. Málið kom upp við hefðbundið eftirlit hjá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli, en háttalag konunnar og hár hennar vöktu grunsemdir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum telst rannsókn málsins vel á veg komin og að mestu upplýst. Styrkleiki kókaínsins liggur ekki fyrir, en lyfjafræðistofnun Háskóla Íslands er nú með efnið í greiningu. Konan gæti átt yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi verði hún ákærð og fundin sek, miðað við sakfellingar í sambærilegum málum. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira