Heildsalar taka valfrelsi af neytendum Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 21. september 2012 12:08 Jóhannes Gunnarsson er formaður neytendasamtakanna.
Formaður Neytendasamtakanna segir heildsala vera að taka valfrelsi af neytendum með því að merkja ekki að vara sé með erfðabreyttum efnum eins og reglugerð kveður á um. Hann vonast til þess að eftirlitsaðilar fari að skoða merkingarnar markvisst. Frá áramótum hefur innflytjendum verið skylt að merkja matvæli og fóður sem innihalda erfðabreytt efni. Nokkuð er flutt hingað til lands af matvælum frá Bandaríkjunum en þar er ekki skylt að merkja erfðabreyttan mat en hins vegar hefur lítið borið á merkingum eftir að reglugerðin tók gildi. Í nýlegri könnun Neytendasamtakanna, Matvæla- og veitingafélag Íslands og Náttúrulækningafélag Íslands kom í ljós að níu af tólf vörum sem kannaðar voru innihéldu erfðabreytt efni án þess að vera merkt. Jóhannes Gunnarsson er formaður neytendasamtakanna. „Að sjálfsögðu veljum við vörur einkum og sér í lagi sem innihalda soja og maís, enda er meginið af soja og maís sem framleitt er í Bandaríkjunum erfðabreytt. Þannig að við veljum vörurnar út frá því sem ætla mætti að væri helst að finna í erfðabreytt efni í." Hann segir innflytjendur vera að brjóta lög með því að vanrækja merkingar og vonast til þess að eftirlitsaðilar muni fylgja könnuninni eftir með markvissri rannsókn á þessum málum. „Það er verið að taka valfrelsið frá neytendum. Við ætlum ekki að segja: Þið eigið að kaupa erfðabreytt eða ekki. Valið á að vera neytandans en til þess þarf hann að fá upplýsingar um það hvort þessi vara sé með erfðabreyttu efni. Ef það er ekki upplýst þá er verið að taka þetta val frá neytandanum og það líðum við ekki," segir Jóhannes.
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira