Andlega vanheill Íslendingur í fangelsi á Spáni Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 5. september 2012 19:09
Íslendingur um sextugt, sem á við andlega vanheilsu að stríða, hefur setið í fangelsi á Spáni um tveggja ára skeið. Unnið er að því að koma manninum heim til þess að ljúka afplánun hér á landi. Maðurinn var handtekinn í ágúst 2010 á flugvellinum í Malaga með rúm fimm kíló af hreinu kókaíni falin í tösku sinni. Heimildarmaður fréttastofu sem þekkir til málsins segir að maðurinn stríði við andlega vanheilsu og geti ekkert tjáð sig á erlendum málum. Saga hans mun vera á þá leið að sumarið 2010 fór hann einsamall í ferðalag til Amsterdam í Hollandi. Þar hitti hann Íslending sem vingaðist við hann og kynnti fyrir vini sínum frá Brasilíu. Að nokkrum dögum liðnum töldu þeir manninn á að koma með sér til Brasilíu sem hann og gerði. Eftir nokkura daga dvöl þar vildi hann komast heim á ný og útveguðu mennirnir honum farseðla og stóra ferðatösku sem var full af nýjum fötum sem þeir sögðust vilja gefa honum. Maðurinn hélt heim á leið og flaug til Portúgal og þaðan til Malaga á Spáni þar sem hann var handtekinn þegar tollverðir uppgötvuðu rúm fimm kíló af hreinu kókaíni vandlega falin í töskunni. Langur tími mun hafa liðið uns maðurinn fékk dóm og undi hann sér illa í fangelsinu í Malaga þar sem hann átti í litlum sem engum samskiptum við annað fólk, hvorki samfanga sína né aðra. Hann mun hafa verið sakfelldur fyrir nokkru síðan en ekki hafa fengist upplýsingar um lengd dómsins. Fyrir um það bil hálfu ári var maðurinn síðan fluttur úr fangelsinu í Malaga og á viðeigandi stofnun í borginni Sevilla. Utanríkisráðuneytið staðfestir að maðurinn hafi verið handtekinn í ágúst 2010 og að konsúll Íslands í borginni hafi aðstoðað manninn en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Heimildir fréttastofu herma að nú sé unnið að því í innanríkisráðuneytinu að fá manninn framseldan hingað til lands en það fékkst þó ekki staðfest í dag.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira