Innlent

Brúnin er að lyftast á Íslendingum

Mælingar Capacent leiða í ljós að það hefur heldur birt yfir þjóðinni síðustu tvö ár. Sá hópur sem metur sig í mjög erfiðri stöðu hefur hins vegar ekki minnkað.
Mælingar Capacent leiða í ljós að það hefur heldur birt yfir þjóðinni síðustu tvö ár. Sá hópur sem metur sig í mjög erfiðri stöðu hefur hins vegar ekki minnkað. Fréttablaðið/Pjetur
Íslendingar hafa orðið sífellt ánægðari með sinn hag síðustu misseri. Fleiri Íslendingar segjast dafna og færri eiga í basli en áður og þá hefur andleg líðan farið batnandi. Þetta leiðir ný könnun Capacent Gallup á líðan Íslendinga í ljós en Capacent hefur mælt stöðu og andlega líðan Íslendinga frá því í maí 2010.

Þegar Capacent hóf að nota þessa mælikvarða töldu 52% Íslendinga sig eiga í basli í lífinu en 45% sögðust dafna. Á síðustu tveimur árum hefur þróunin hins vegar verið nokkuð stöðug í jákvæðari átt. Þannig töldu alls 67,4% Íslendinga sig dafna í nýjust mælingunni. Þá telja 29,0% sig eiga í basli. Aldrei hafa fleiri talið sig dafna og færri talið sig eiga í basli.

Sá hópur Íslendinga sem er í erfiðastri stöðu hefur hins vegar ekki minnkað á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því að Capacent hóf þessar mælingar. Telja 3,6% sig nú vera í þrengingum en hlutfallið var 3% í maí 2010.

Spurð um andlega líðan sína kom í ljós að tæp 48% sögðust upplifa mikla hamingju en hafa litlar áhyggjur. Hefur það hlutfall ekki mælst hærra. Þá sögðust tæp 8% hafa miklar áhyggjur og upplifa litla hamingju en það er nálægt meðaltali mælinga síðustu tvö árin.

- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×