Innlent

Þingmenn í myrkri

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Helgi Hjörvar í ræðustól
Helgi Hjörvar í ræðustól Skjáskot af vef Alþingis
Rafmagn fór af að hluta í húsakynnum Alþingis við upphaf þingfundar í morgun. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var í pontu að ræða störf þingsins þegar ljósin slokknuðu. Hann og aðrir þingmenn létu þetta lítið á sig fá, enda var enn hægt að tala í hljóðnemann úr ræðustól. Innan við tíu mínútum síðar voru ljósin komin aftur á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×