Bankasýslan undirbýr sölu fjármálafyrirtækja 13. júlí 2011 14:08 Elín Jónsdóttir forstjóri Bankasýslunnar.
Undirbúningur er hafinn að gerð söluáætlunar á hlutum Bankasýslu ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Þetta kemur fram í nýútkominni ársskýrslu Bankasýslunnar. Nafnverð þessara eigna er um 137 milljarðar kr. Eignirnar eru (hlutur innan sviga): Landsbankinn (81,3%), Arion banki (13,0%), Íslandsbanki (5,0%), Sparisjóður Bolungarvíkur (90,9), Sparisjóður Vestmannaeyja (55,3%), Sparisjóður Svarfdæla (90,0%), Sparisjóður Norðfjarðar (49,5%) og Sparisjóður Þórshafnar (75,8%) Í skýrslunni segir að það sé í verkahring Bankasýslu ríkisins að gera tillögur til fjármálaráðherra um hvort og hvenær eignarhlutir í fjármálafyrirtækjum verði boðnir til sölu. Verkefnið er mikilvægt. Tímasetning og framkvæmd sölu hefur margþætt áhrif. Fyrst ber að nefna áhrif á mögulega ávöxtun ríkissjóðs af fjárfestingunni og því hvort öðrum markmiðum með eignarhaldi ríkisins hefur verið náð. Í öðru lagi mun framkvæmd sölu hafa bein áhrif á fjármálafyrirtækin sem í hlut eiga þar sem uppbygging eigendahóps mótast í sumum tilvikum að mestu leyti af ákvörðunum ríkisvaldsins við sölu. Í þriðja lagi ber að nefna áhrif á kaupendur, en ríkisvaldið mun ekki geta selt eignarhluti fyrr en meiriháttar óvissuþáttum í rekstri og umhverfi fjármálafyrirtækjanna hefur verið eytt. Í fjórða lagi má loks nefna að sala stórra eignarhluta getur haft veruleg áhrif á þróun hlutabréfamarkaðar, en afar mikilvægt er að vel takist til við stórar nýskráningar á markað eftir hrun íslenska hlutabréfamarkaðarins. Gera má ráð fyrir að verðmyndum verði viðkvæm, jafnvel þannig að tilhneiging verði til bólumyndunar þegar fjármálamarkaður er lokaður og fjárfestingarþörf fagfjárfesta er stöðug. Það er því ljóst að miklu skiptir að vel takist til við undirbúning og framkvæmd söluáætlunar, sem og annarra verkefna Bankasýslunnar. Af hálfu stofnunarinnar var því lýst yfir þegar á fyrsta starfsári að vegna núverandi og fyrirsjáanlegra verkefna væri nauðsynlegt að fjölga starfsmönnum m.a. til að stofnunin byggi yfir nauðsynlegum þekkingargrunni. Þá yrði stofnunin að geta leitað til utanaðkomandi sérfræðinga þegar þörf kræfi, en í málefnum Bankasýslunnar kann að vera nauðsynlegt að leita til erlendra sérfræðinga vegna tiltekinna verkefna. Uppbygging stofnunarinnar hefði þurft að eiga sér stað á árinu 2010 þar sem verkefni hennar eru aðkallandi, hagsmunir miklir og starfstími takmarkaður. Fjármögnun stofnunarinnar gaf hins vegar ekki svigrúm til þess.
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira