Graði þingmaðurinn búinn að segja af sér 16. júní 2011 14:35 Weiner ásamt eiginkonu sinni en hún ber fyrsta barn þeirra undir belti.
Anthony Weiner, þingmaður demókrata í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér þingmennsku eftir að upp komst um kynlífshneyksli hans fyrir nokkrum vikum. Weiner viðurkenndi í byrjun mánaðarins að hafa sent nokkrum konum myndir af sér fáklæddum. Í rúma viku laug hann að fjölmiðlum að einhver hefði hakkað sig inn á Twittersíðu sína og sent myndirnar á konurnar. Hann hélt svo blaðamannafund nokkru síðar og viðurkenndi að hafa sent myndirnar á að minnsta kosti sex konur, sumar þeirra eftir að hann giftist núverandi eiginkonu sinni. Stuttu eftir blaðamannafundinn sögðu fjölmiðlar vestanhafs frá því að eiginkona hans væri ófrísk af þeirra fyrsta barni. Hjónaband þeirra hefur verið á milli tannanna á fólki og velta fjölmiðlar í Bandaríkjunum því fyrir sér hvort að hún muni fyrirgefa honum þessa ósæmilegu hegðun á netinu. Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, þrýsti á Weiner að segja af sér þingmennsku og Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði að hann væri búinn að segja af sér væri hann í sporum þingmannsins. Klámmyndaleikkonan Ginger Lee steig fram á dögunum og sagði að Weiner hafi beðið sig um að ljúga til um samskipti þeirra en þau skiptumst á um hundrað skilaboðum á netinu. Hún sagði við fjölmiðla fyrir stuttu að Weiner ætti að segja af sér vegna þess að hann hefur ítrekað logið eftir að málið varð opinbert. Og það hefur hann nú gert. Hvað hann tekur sér nú fyrir hendur er óljóst en hann mun eflaust geta fundið sér eitthvað til dundurs. Weiner átti sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og var rísandi stjarna innan flokksins. Margir bjuggust við því að hann myndi bjóða sig fram í næstu borgarstjórnarkosningum New York-borgar sem fara fram árið 2013.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira