Anderson í áfalli eftir fyrsta tap sitt með Austurríki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2011 15:00 Magnus Andersson, þjálfari austurríska landsliðsins. Nordic Photos / Bongarts
Austurríska landsliðið í handbolta tapaði í gær sínum fyrsta leik undir stjórn nýja landsliðsþjálfarans, Svíans Magnus Andersson. Austurríki steinlá fyrir Serbíu, 39-27, í vináttulandsleik í Belgrad. Serbarnir byrjuðu mjög vel og voru komnir með tólf marka forystu eftir aðeins átján mínútur, 17-5. Fjölmiðlar í Serbíu sögðu sigurinn hafa verið hefnd fyrir leik liðanna á EM 2010 er heimamenn í Austurríki slógu út Serbana í riðlakeppninni með sigri í lokaumferðinni, 37-31. Bæði lið voru í riðli með Íslandi sem vann riðilinn. „Þetta eru mikil vonbrigði," sagði Andersson eftir leikinn. „Við vorum að mæta sterkum andstæðingi en þetta er engu að síður áfall fyrir mig. Þetta var minn fyrsti tapleikur með Austurríki." „Við byrjuðum mjög illa og það var margt að í okkar leik. Ég veit ekki hvað ég get sagt meira. Þeir komust tólf mörkum yfir í fyrri hálfleik og það segir allt sem segja þarf." Andersson tók við þjálfun austurríska landsliðsins af Degi Sigurðssyni sem náði góðum árangri með liðinu á EM í fyrra.
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira