Enn ein hryssan fyrir barðinu á dýraníðingi 21. október 2011 07:00 Eigendur hesthússins sem hryssunni var misþyrmt í vilja brýna fyrir hesteigendum að gæta að hrossum sínum í haga og hesthúsum meðan sá eða þeir sem stunda það að níðast á hrossum eru ófundnir. Hrossin á myndinni tengjast ekki fréttinni. Fréttablaðið/heiða
Enn ein hryssan varð fyrir barðinu á níðingi eða níðingum fyrr í vikunni er hún reyndist vera með djúpan skurð í leggöngum og annan minni á ytri kynfærum, þegar ódæðið komst upp. Málið var kært til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Er þetta fjórða níðingsmálið sem kært er til lögreglu á undanförnum mánuðum. Hryssan er ásamt fleiri hrossum í hesthúsi í nýja hesthúsahverfinu á Kjóavöllum í Kópavogi. Eigendur hesthússins sjá sjálfir um hirðingu hrossanna á kvöldin en fá annan aðila til að sjá um morgungjafir eins og tíðkast. Þegar hryssan var sett út á þriðjudagskvöld og hún fór að hreyfa sig reyndist blóð leka aftur úr henni. Katrín Harðardóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Víðidal, var þegar kölluð til og hefur hún annast hryssuna síðan. „Hún var mjög aum og fann auðsjáanlega mikið til,“ segir Katrín um aðkomuna og lýsir áverkunum með ofangreindum hætti. Hún segir allt benda til þess að áverkarnir hafi verið af mannavöldum. Annar dýralæknir hefur einnig staðfest það eftir að hafa skoðað hryssuna. Eigendur hesthússins segja að þeir hafi falið varalykil að hesthúsinu, sem er nýtt og á að vera óaðgengilegt ókunnugum, utandyra. Telja megi fullvíst að sá eða þeir sem stóðu að misþyrmingunum á hryssunni hafi vaktað mannaferðir í húsið og látið til skarar skríða aðfaranótt þriðjudagsins. Fleiri hross hafi verið í húsinu, þar á meðal einar sjö hryssur en þær séu allar frekar lítið tamdar eða styggar og varist að maðurinn komist nærri þeim. Sú sem fyrir misþyrmingunum varð er hins vegar spök og þæg í umgengni. Eigendurnir vilja brýna fyrir hesteigendum að læsa vel hesthúsum sínum, skipta um skrá ef lyklar hafa farið á flæking, geyma ekki varalykla utandyra og vera vel á verði verði sjái þeir til grunsamlegra mannaferða í hesthúsahverfunum. Þá sýni reynslan að full þörf sé á því fyrir hestamenn að huga að hrossum sínum í haga. jss@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira